151. löggjafarþing — 55. fundur,  16. feb. 2021.

málefni innflytjenda.

452. mál
[16:51]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Það er líklega ágætt að hv. þingmaður hafi ekki gefið sérstök fyrirheit um að reyna að hafa hemil á skapsmunum sínum því að þessi sýning sem við sáum hér var algerlega óþörf. Hv. þingmaður veit það mætavel að ég hef lesið frumvarpið, fylgst með umræðu um þetta mál þegar hún fór fram á síðasta þingi og fylgst með þeim svörum sem þá voru veitt. Þau svör voru afdráttarlaus um áhrif frumvarpsins. Það snýst um að veita fólki sömu kröfu, sama rétt, óháð því hvernig það kemur til landsins. Auðvitað má taka undir hvað varðar samræmingu í upplýsingagjöf og slíku en eins og ég gat um í fyrra andsvari og eins og ég fjallaði um í ræðu minni birtast áhrifin fyrst og fremst í því að verið sé að veita fólki sama kröfurétt á móttökusamfélagið.