málefni innflytjenda.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni fyrir þessa ræðu og segja að ég deili einum hlut með hv. þingmanni, þ.e. að við sem samfélag eigum ekki að taka á móti fleirum en við ráðum við eða getum aðstoðað við að aðlagast íslensku samfélagi, læra íslenska tungu, ná að koma undir sig fótunum o.s.frv. En þetta frumvarp snýr að því að þeir einstaklingar sem eru búnir að fá stöðu í íslensku samfélagi fái þjónustu og aðstoð við að gera einmitt það, nákvæmlega það sama og gerist á öllum hinum Norðurlöndunum; í Noregi, Svíþjóð, Finnlandi og Danmörku. Það voru því dylgjur og bull hér áðan að halda því fram að það væri með öðrum hætti.
Ég velti hins vegar fyrir mér: Hvað er það sem rekur hv. þingmann áfram í því að vera á móti því að einstaklingar sem hafa fengið stöðu í samfélaginu fái aðstoð við að læra íslensku, fái aðstoð við að koma undir sig fótunum, fái aðstoð við að finna hér vinnu? Það held ég að sé ákveðin pólitík. (Forseti hringir.) Það er pólitík sem hv. þingmaður keyrir hér áfram. Hann blandar saman ólíkum hlutum (Forseti hringir.) sem ég og hv. þingmaður erum sammála um, sem snúa að því hverjir fá að koma inn í landið (Forseti hringir.) og að við eigum ekki að taka fleiri en við getum tekið á móti. En að vilja ekki þjónusta fólkið (Forseti hringir.) sem kemur til landsins, það er ljót pólitík, hv. þingmaður. (RBB: Heyr, heyr.)
(Forseti (BN): Ég vil biðja hv. þingmenn um að virða tímamörk, líka hæstv. ráðherra.)