151. löggjafarþing — 55. fundur,  16. feb. 2021.

málefni innflytjenda.

452. mál
[16:54]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Pólitík er vissulega orðin ljót nú til dags vegna tilburða ýmissa stjórnmálamanna eins og hæstv. ráðherra til þess að stimpla fólk og gera því upp skoðanir. Hæstv. ráðherra var ekki að gera neitt annað í þessu andsvari sínu og fyrri andsvörum. Hann á erfitt með að rökstyðja mál sitt og þess vegna gerir hann gagnrýnendum upp einhverjar allt aðrar skoðanir en þeir hafa haldið fram. Þó viðurkennir ráðherrann að ekki eigi að taka á móti fleirum en við ráðum við, en á sama tíma leggur hann fram frumvarp sem verður til þess að straumurinn verður meiri en við ráðum við. Hann er reyndar þegar orðinn það, eins og komið hefur í ljós, með öllum þeim vandræðum sem móttökukerfið hefur verið að fást við. Það er ekki hægt að halda þessu tvennu fram á sama tíma, að ekki eigi að taka á móti fleirum en samfélagið ræður við og að það sé allt í lagi að auka kröfurnar sem menn geta gert til samfélagsins og fjölga þar með umsóknum.