151. löggjafarþing — 55. fundur,  16. feb. 2021.

málefni innflytjenda.

452. mál
[17:03]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég hef ekki orðið var við að Evrópulönd séu mikið að hverfa af þeirri leið að reyna að draga úr straumi hælisleitenda til landanna, a.m.k. ekki Norðurlöndin sem, eins og ég rakti hér áðan, leggja sig fram við að virðast óaðlaðandi valkostur í þeim efnum.

En varðandi þetta samkomulag við Tyrki og áhrifin af því þá má auðvitað velta því fyrir sér hvort að þarna birtist ekki bara enn og aftur hversu innantómar ræðurnar voru árið 2015. Ég nefndi áðan: Hvers vegna leyfa þessi lönd ekki bara fólkinu að koma með flugvél? Fólkið borgar oft jafnvel margfalt meira en flugmiði kostar. Það er vegna þess að löndin vilja ekki leyfa fólkinu það, vilja ekki veita því vegabréfsáritanir en senda það frekar í lífshættulega ferð yfir Miðjarðarhafið og um óbyggðir Afríku eða Asíu og (Forseti hringir.) láta svo mynda það þegar tekið er á móti fólkinu með blómum á lestarstöðinni í München (Forseti hringir.) eða einhvers staðar. Þetta finnst mér vera til marks (Forseti hringir.) um mjög óheilbrigða stefnu í þessum málaflokki. Hún er afleiðing sýndarmennsku, herra forseti.

(Forseti (ÞorS): Forseti minnir á tímamörk.)