málefni innflytjenda.
Virðulegi forseti. Ég hef fengið mig fullsaddan af vælinu í Miðflokknum og sambærilegum íhaldsáttum yfir því að fólk segi upphátt það sem er augljóst, að Miðflokkurinn elur á útlendingaandúð, viljandi eða óviljandi, meðvitað eða ómeðvitað. (BirgÞ: Þetta er rangt, þetta er rangt.) — Nei, það er rétt. Og hv. þingmaður má vita það að Miðflokkurinn axlar þá ábyrgð, [Frammíköll í þingsal.] hvort sem honum líkar það betur eða verr. (ÞorS: Þetta er Pírötum til skammar.) (Forseti hringir.)
(Forseti (WÞÞ): Hv. þingmaður hefur orðið.)
(BirgÞ: Þú getur bara ekki látið svona frá þér, hv. þingmaður.)
Ég gerði það og mun gera það aftur, hv. þingmaður. Ítrekað, hér og víðar. (Gripið fram í.) Því að eins og ég segi: Ég er búinn að fá sig fullsaddan af því að hv. þingmenn Miðflokksins (Gripið fram í.) komi hingað og þykist enga ábyrgð bera á útlendingaandúð sem vex í landinu þegar þeir halda uppi málflutningi og rangfærslum, ítrekuðum og margleiðréttum, um útlendingamál á Íslandi. (Gripið fram í.)
— Nei, þetta er hárrétt hjá mér, virðulegi forseti.
(Forseti (WÞÞ): Hv. þingmaður hefur orðið og ég bið hv. þingmenn um að gæta orða sinna.)
Hv. þingmenn Miðflokksins mega vita það að ef þeir vilja ekki sitja undir þessu frá þeim sem hér stendur þá skulu þeir hætta þessu. Það er sanngjarnt. Þeir þurfa að bera ábyrgð á sínum málflutningi, virðulegi forseti. Þegar þeir predika hér um galopin landamæri og sprungin kerfi þá bera þeir ábyrgð á þeim orðum. Þannig er það og verður áfram. (Gripið fram í.)
Að spurningu hv. þingmanns. Frumvarpið er hérna. Þetta eru fjórar greinar, eins og ég er búinn að margútskýra. Í 1. gr. er felld brott klausa úr lögum um upplýsingagjöf og dreifingu upplýsinga eða móttöku upplýsinga. Í 2. gr. er fjallað um Fjölmenningarsetur og faglegar leiðbeiningar, ráðgjöf, upplýsingar og að halda utan um og standa fyrir samráði. Seinni hluti 2. gr. fjallar um upplýsingaöflun og 3. gr. fjallar um smávægileg lagatæknileg atriði, einni tölu er breytt, úr 6 í 7, og 4. gr. er gildistökuákvæði.
Virðulegi forseti. Það er einfaldlega ekkert í þessu frumvarpi sem breytir einu eða neinu um það hvort hælisleitendur sem fá dvalarleyfi fái sömu þjónustu og kvótaflóttamenn eða ekki. (Forseti hringir.) Þetta frumvarp breytir því einfaldlega ekki. Þetta er óumdeild staðreynd ef maður les frumvarpið. (Forseti hringir.) Og ef ekki væri fyrir fyrrnefndan málflutning Miðflokksins sem ég hef verið hér að gagnrýna, þá myndu hv. þingmenn ekki bara vita þetta og viðurkenna, (Forseti hringir.) þeir myndu segja það í pontu, frekar en nýta tækifærið enn og aftur (Forseti hringir.) til að ýta undir útlendingaandúð í landinu.
(Forseti (WÞÞ): Forseti biður ræðumenn um að virða ræðutíma.)