málefni innflytjenda.
Herra forseti. Ég ætla enn að finna að fundarstjórn forseta, sem leyfir hæstv. félags- og barnamálaráðherra að koma upp undir liðnum fundarstjórn forseta í efnisumræðu. Ef hæstv. ráðherra liggur eitthvað á hjarta um umræðuna sem slíka þá getur hann sett sig á mælendaskrá eins og allir aðrir og tekið til máls í umræðunni. Honum fannst umræðan döpur. Hann bætti ekki úr skák með því að koma hér upp undir liðnum fundarstjórn forseta. Þessi umræða varð enn daprari eftir að hann kom upp undir þessum lið. Ég segi aftur: Þolinmæði forseta er aðdáunarverð en hann á ekki að leyfa efnislega umræðu sem á heima undir liðnum sem við erum að ræða, þ.e. undir dagskrárliðnum. Að þessu ætlaði ég að finna. Hitt er svo annað mál að ég ætla ekki að kveinka mér undan því að þessi hæstv. ráðherra finni (Forseti hringir.) eitthvað að siðfræði minni eð siðferði mínu vegna þess að sjálfur er hann ber að slíku, og verr, áður.