málefni innflytjenda.
Forseti. Ég ætla að játa að það er pínu spaugilegt að hlusta á hv. þingmenn Miðflokksins finna að því hvernig aðrir þingmenn nýta sér liðinn um fundarstjórn forseta. Var ég með þeim hérna margar nætur í umræðu um orkupakka þrjú fyrir einhverju síðan (Forseti hringir.) og það var ekki eins og hér væri farið eftir öllu sem okkur er lagt fyrir hér. En fólk sér oft betur flísina í auga náungans en bjálkann í eigin auga. Annað máltæki sem mér dettur í hug núna er: Ef það gengur eins og önd, ef það hljómar eins og önd, þá er langlíklegast að það sé önd. Ég er ekki hissa á því að hv. þm. Helgi Hrafn Gunnarsson dragi þær ályktanir sem hann dregur af umræðunni eins og hún hefur verið hér.
Ég ætla að lýsa yfir ánægju minni með fundarstjórn forseta. Mér fannst hann einmitt hafa verið mjög þolinmóður og hafa veitt okkur eðlilegt taumhald, en um leið svigrúm til að koma okkar skoðunum á framfæri. Ef fólk þolir ekki skoðanir annarra á sjálfu sér, ætti það kannski ekki að vera í þessum þingsal og gegna þeirri stöðu sem það gegnir.