störf þingsins.
Forseti. Í gær var umræða um málefni innflytjenda, einfalt mál um starfsemi Fjölmenningarseturs. Án þess að fara nánar út í þá umræðu sem þar fór fram er eitt sem þarf að bæta við og það er tillitssemi. Innflytjendur eru fjölbreyttur minnihlutahópur í íslensku samfélagi, hvað þá hópurinn sem hefur komið hingað vegna ofsókna í heimalandi sínu. Þetta er hópur sem getur illa tekið þátt í opinberri umræðu og á erfitt með að svara fyrir sig af augljósum ástæðum. Þessi staðreynd hefur ákveðnar afleiðingar í för með sér fyrir opinbera umræðu. Hún krefst þess að fjallað sé um málefni þessa hóps af þeirri tillitssemi sem er nauðsynleg til að þeir sem geta ekki svarað fyrir sig þurfi ekki að svara fyrir sig. Það þýðir ekki hömlur á tjáningarfrelsi eða ritskoðun, það þýðir einfaldlega að við þurfum að vanda málflutning okkar. Óvandað mál gagnvart þessum hópi getur mjög auðveldlega misskilist á alla vegu með mjög alvarlegum afleiðingum. Sögulega séð eru nokkrir hópar sem óvönduð og fordómafull umræða hefur bitnað sérstaklega illa á. Þar eru innflytjendur, trúarhópar og fólk með öðruvísi húðlit augljósustu dæmin. Sögulega séð hafa ákveðin pólitísk öfl beislað fordómafulla umræðu sér í vil með slæmum og oft hörmulegum afleiðingum. Mikil er því ábyrgð þeirra sem daðra við slíka fordóma, jafnvel þeirra sem meina vel og daðra óvart við þá. Afleiðingunum er alveg sama um hversu vel meinandi fordómarnir voru. Ef fólk skilur ekki mikilvægi þess að hafa tillitssemi að leiðarljósi í umræðu um innflytjendamál þá liggur vandinn þar; í skilningsleysi á afleiðingum fordóma og óvandaðrar umræðu gagnvart hópum sem geta ekki svarað fyrir sig.