störf þingsins.
Forseti. Því miður kom það lítið á óvart að í morgun birtust fréttir af því að ræða eigi vopnareglur lögreglu á fundi lögregluráðs á morgun. Án efa birtist þessi fréttaflutningur í kjölfar skotárásarinnar síðastliðinn laugardag. Ég vona að lögreglan sé ekki að fara að nota þann sorglega atburð sem lóð á vogarskálar fyrir þeim málflutningi að vopnavæða lögregluna enn frekar. Lögreglan var hvergi nálægt þegar skotárásin átti sér stað svo það myndi skila litlu að nýta árásina í að undirbyggja málflutning um frekari vopnakaup lögreglu. Í svari innanríkisráðherra við fyrirspurn um vopnaeign lögreglunnar frá 2015 kemur fram að lögreglan átti þá samtals 590 vopn. Á tímabilinu 1. janúar 2015 til 10. júní 2020 voru keypt 188 vopn til viðbótar. Lögreglan er því vopnavædd og því spurning hvort ekki þurfi að auka eftirlit með núverandi vopnaeign í stað þess að auka fjölda vopna. Enn frekari vopnavæðing lögreglunnar leysir ekki nein vandamál. Ég vona að þingheimur átti sig á því þegar pressan frá lögreglunni kemur inn fyrir dyr með miklum krafti. Hvað varðar heimildir lögreglu til að rannsaka skipulagða starfsemi megum við ekki gleyma því að aðgerðir lögreglu fela í sér inngrip í friðhelgi einkalífs og það er ekki að ástæðulausu að heimildum lögreglu til að grípa inn í einkalíf einstaklinga séu settar skorður. Yfirmenn lögreglunnar telja að á Íslandi séu slakari reglur varðandi valdheimildir lögreglu miðað við samstarfslönd. Það þarf ekki endilega að vera slæmt ef við skoðum málið með réttindi einstaklinga í forgrunni. Lögreglan, eins og önnur stjórnvöld, má aldrei fá óskoraðar valdheimildir til eins eða neins. Þá erum við komin ansi nálægt því að búa í lögregluríki. Hefði frekari vopnavæðing lögreglunnar komið í veg fyrir skotárásina á laugardaginn? Nei. Hefði aukið eftirlit með lögreglunni, úttekt á starfsumhverfi hennar almennt, getað komið í veg fyrir atburðinn á laugardaginn? Ég kýs alla vega að trúa því.