störf þingsins.
Forseti. Mig langar að taka upp þráðinn þar sem hv. þingmaður, sem hér talaði á undan mér, sleppti honum. Í kjölfar þessa hræðilega atburðar síðustu helgi, skotárásar, morðs, hefur umræða enn einu sinni kviknað um það hvort vopnavæða eigi hina almennu lögreglu. Ég tek undir varnaðarorð þar um. Það er sjálfsagt að við ræðum það hvernig lögreglunni, hinni góðu stofnun og mjög svo nauðsynlegu, sem sinnir gríðarlega mikilvægu hlutverki, gengur að vinna gegn skipulagðri glæpastarfsemi, fara heildstætt í skoðun á því hvort breyta þarf einhverju hvað það varðar, að sjálfsögðu með öll réttindi í huga. Það er sjálfsagt að setjast yfir þau mál.
Forseti. Við þurfum að ákveða hvernig þjóð við viljum vera. Mín skoðun er sú að við viljum áfram vera þjóð þar sem hin almenna lögregla er ekki vopnum búin. Það fyrirkomulag sem nú er fyrir hendi hefur sýnt sig virka ágætlega. Sérsveit hefur yfir vopnum að ráða ef á þarf að halda. Við eigum ekki að kasta til höndunum, vegna viðbragða við skelfilegum atburðum, þegar við veltum því fyrir okkur hvert svarið sé. Við skulum fara yfir þessi mál, en við skulum spyrja okkur þessarar grundvallarspurningar: Hvernig þjóð viljum við vera? Mitt svar er einfalt hvað það varðar: Við eigum að efla hina almennu lögreglu. Við eigum ekki að stíga þau skref að auka vopnaburð hennar.