störf þingsins.
Virðulegi forseti. Efling hefur nýlega vakið athygli á nýju frumvarpi félags- og barnamálaráðherra til starfskjaralaga og lýst því sem blautri tusku í andlit þolenda launaþjófnaðar. Þolendur launaþjófnaðar á Íslandi eru allt of margir og vandamálið er að aukast. Samt sem áður hafa íslensk stjórnvöld ítrekað gengið á bak orða sinna um réttarbót í þessum málaflokki. Það hefur alls ekki verið tekið af krafti og dug á brotastarfsemi á vinnumarkaði. Í staðinn eru settar fram gagnslausar lagasetningarhugmyndir þar sem sjónarmiðum verkalýðshreyfingarinnar er ekki mætt.
Í umsögn Eflingar um nýja frumvarpið segir, með leyfi forseta:
„Í frumvarpinu eru þolendur launaþjófnaðar skikkaðir til að hætta eigin atvinnuöryggi áður en Vinnumálastofnun veitir þeim áheyrn í nýju og gríðarlega flóknu málsmeðferðarferli, þar sem í hverju skrefi hallar á brotaþola. Atvinnurekendur fá fullt sjálfdæmi um eigin sök í „samráðsnefnd“ og fá sjálfir að ákveða hvort sérstakur gerðardómur fjalli um mál þeirra. Frumvarpið leggur í raun alla ábyrgð á herðar einstaks launamanns og viðurlög takmarkast við það eina mál í stað þess að skoða öll viðlíka mál sem líklegt er að ættu sér stað á sama tíma. Í frumvarpinu er engin bótaregla eða févíti, líkt og verkalýðshreyfingin hefur kallað eftir, sem tryggt gæti afleiðingar fyrir algengustu framkvæmd launaþjófnaðar á íslenskum vinnumarkaði.“
Það er óskiljanlegt, virðulegi forseti, hvers vegna núverandi ríkisstjórn hefur ekki meiri metnað í málefnum launafólks. Formaður Eflingar hefur sagt að hugmyndaflug ráðherra hafi fengið lausan tauminn án þess að raunveruleiki verka- og láglaunafólks hafi þvælst fyrir á nokkru stigi. Hvers vegna er ekki hægt að gera þessa hluti rétt og vel og gæta að réttindum þeirra sem raunverulega snúa hjólum atvinnulífsins á Íslandi?