151. löggjafarþing — 56. fundur,  17. feb. 2021.

störf þingsins.

[13:16]
Horfa

Birgir Ármannsson (S):

Herra forseti. Hér hafa tveir hv. þingmenn vikið að lögreglunni og heimildum hennar í umræðunum á undan. Ég get auðvitað verið sammála þeim upp að vissu marki, þ.e. ég er sammála þeim að í öllum tilvikum þarf að huga að því að bæði rannsóknarheimildir og valdbeitingarheimildir lögreglu sæti takmörkunum og eftirliti. Þegar embættismenn ríkisins, hvort sem það er lögreglan eða aðrir, fá í hendur heimildir, ríkar heimildir, til annaðhvort rannsóknar eða valdbeitingar þá þarf það vald auðvitað að vera temprað með einhverjum hætti. Þess vegna þarf að sjálfsögðu alltaf að stíga varlega til jarðar varðandi lagaheimildir og framkvæmd að þessu leyti. Það er hins vegar eðlilegt þegar alvarlegir atburðir verða að rannsóknar- og valdbeitingarheimildir lögreglu séu teknar til skoðunar, teknar til umræðu. Ég held að það væri gott fyrir þá umræðu að taka málið upp á vettvangi allsherjar- og menntamálanefndar, sem hefur m.a. með lögreglumál að gera, þannig að við getum heyrt það frá stjórnendum lögreglu og dómsmálayfirvöldum hvaða breytingar hafa átt sér stað á þessu umhverfi á undanförnum árum, séð hvaða tillögur koma hugsanlega fram um breytingar á heimildum og það sé farið yfir hvort lögreglan sé eins og við viljum að hún sé, í stakk búin til að bregðast við alvarlegri stöðu og alvarlegum afbrotum.

Bæði núverandi dómsmálaráðherra og fyrrverandi dómsmálaráðherra hafa beitt sér fyrir eflingu lögreglunnar að mörgu leyti og mikilvægt að allsherjar- og menntamálanefnd fari líka yfir það. Það hefur verið unnin vinna á þessu sviði, m.a. (Forseti hringir.) til að vinna gegn skipulagðri glæpastarfsemi, og það er eðlilegt að það sé tekið til umræðu hvort við þurfum að stíga frekari skref í þeim efnum.