151. löggjafarþing — 56. fundur,  17. feb. 2021.

störf þingsins.

[13:33]
Horfa

Líneik Anna Sævarsdóttir (F):

Virðulegi forseti. Vopnafjörður hefur verið án rafmagns frá raforkukerfinu frá því á aðfaranótt sunnudags. Varaafl þar sem olíu er brennt hefur séð öllu byggðarlaginu fyrir raforku þessa daga; sunnudag, mánudag, þriðjudag og nú er kominn miðvikudagur. Línan skemmdist og síðan hefur snjóflóðahætta og veður komið í veg fyrir viðgerð og gerir enn. Þetta er afleit og óviðunandi staða og það á miðri loðnuvertíð. Það vill til að næstum öll loðna sem komin er á land fer í manneldisvinnslu sem ekki er eins orkufrek og bræðsla.

Samkvæmt vef Landsnets er áformað að leggja hluta af Vopnafjarðarlínu eitt í jörð á tæplega 10 km löngum kafla yfir Hellisheiði þar sem veðurskilyrði eru erfið, svæðið torfarið og slysahætta, einmitt á því svæði þar sem línan er nú biluð. Samkvæmt vef Landsnets er áætlað að leggja þennan hluta línunnar í jörð sumarið 2021. Staðan núna sýnir einmitt mikilvægi þess að þeirri áætlun seinki ekki, við hana verði staðið. Það er svo engin Vopnafjarðarlína tvö því það vantar alveg hringtengingu raforkukerfisins á norðausturhorninu eins og víðar. Það er raforkuskortur á þessu svæði og það hefur verulega hamlandi áhrif á atvinnulífið á svæðinu og slæm umhverfisáhrif þegar brenna þarf olíu.

Virðulegi forseti. Þessi staða minnir enn og aftur á að tryggja þarf öllum byggðarlögum aðgang að nægjanlegri og tryggri raforku, svo sem á Tröllaskaga og á norðausturhorninu og víðar þar sem eru botnlangar eða endar í raforkukerfinu hjá okkur.