störf þingsins.
Virðulegi forseti. Undanfarnar vikur hafa talsmenn bænda og talsmenn hins frjálsa markaðar haft skoðanaskipti um framkvæmd innflutnings á landbúnaðarvörum og hvernig best verði staðið að verslun með innlendar landbúnaðarafurðir. Óhætt er að segja að þar mætist ólík sjónarmið. Erna Bjarnadóttir hagfræðingur hefur ítrekað bent á vankanta er varða innflutning á mjólkurvörum en einhvern veginn eiga þessar vörur til með að umbreytast í hafi á leið sinni frá meginlandinu til Íslands. Venjulegur ostur breytist t.d. í jurtaost o.s.frv. En eftir ábendingar Ernu virðist sem innflutningur á jurtaosti hafi stórminnkað. Það er verulega áhugavert.
Víkjum nú að afurðastöðvum í kjötiðnaði. Áhugaverð umræða hefur farið fram um hvert skuli stefna. Þingmenn Framsóknarflokksins hafa þrisvar sinnum á þessu kjörtímabili lagt fram frumvarp þess efnis að afurðastöðvum í kjötiðnaði verði veitt undanþága frá 71. gr. búvörulaga sem heimilar samstarf og sameiningu fyrirtækja sem starfa á þessum vettvangi. Óhætt er að segja að ekki séu allir á sama máli um hvert skuli stefna þegar við fjöllum um framtíð innlendrar matvælaframleiðslu. Áðurnefnd Erna Bjarnadóttir hefur í greinaskrifum bent á að svipaðar undanþágur séu hjá nágrönnum okkar í Noregi og í Evrópusambandinu.
Þegar kemur að landbúnaði hafa ríki heimsins nefnilega mörg hver litið svo á að nauðsynlegt sé að veita undanþágur frá ákveðnum reglum er varða samkeppni. Samkeppni er af hinu góða en höfum þá samkeppnina á jafnréttisgrunni. Samkeppnin kemur að utan og stýrir verðmyndun á matvælamarkaði. Til að takast á við þessa breyttu heimsmynd þurfa bændur og fyrirtæki sem vinna við úrvinnslu matvæla verkfæri.