störf þingsins.
Virðulegi forseti. Þegar rætt er um kjör aldraðra verður að hafa í huga að hópur eldri borgara er misjafn eins og einstaklingarnir eru margir. Sem betur fer eru kjör stærsta hluta hóps aldraðra góð. Þeir sem eru að komast á eftirlaun núna eru baráttuglaður hópur, blómakynslóðin sem vildi breytingar og stóð fyrir þeim; kvenréttindi, aukinn réttur til náms, réttindi barna og réttindi á vinnumarkaði. Réttindi sem skiluðu sér inn á síðustu tveimur áratugum síðustu aldar, voru byltingarkennd og skiptu máli. Með bættri lýðheilsu verður þjóðin eldri og heldur lengur færni til að njóta lífsins. Því er eðlileg krafa að þeir sem vilja halda áfram á vinnumarkaði hafi tök á því. Hvað er eðlilegt við að setja það í lög að á 67 ára afmælisdaginn sé fólk orðið gamalt? Það átti kannski við fyrir 50 árum en gildir ekki í dag. Þá voru líka önnur viðmið. Við 67 ára aldur öðlast fólk ýmis réttindi en missir líka önnur. Baráttunni um bætt kjör þeirra sem fara á eftirlaun er hvergi nærri lokið. Þeir sem hafa góðan lífeyrissparnað eða hafa átt kost á að treysta afkomu sína með sparnaði eða eignum þurfa ekki að kvíða þessum árum. En það er hópur í samfélaginu sem býr við kröpp kjör, sérstaklega konur en einnig karlar sem hafa verið á láglaunamarkaði og ekki getað tryggt sér eigið húsnæði sem og öryrkjar sem ekki hafa byggt upp lífeyrissparnað. Er kannski mögulegt að uppfæra eða útfæra hlutdeildarlánin fyrir þennan hóp? Það þarf að huga að þessum hóp og sérstaklega að þeim sem fá eftirlaun af lágmarkslaunum. Þá þarf að endurskoða skerðingarmörkin en skerðingin á eftirlaunum vegna atvinnutekna og annarra tekna yfir mörkunum er 45%. Það er ekki hægt að jafna kjör aldraðra á einfaldan hátt en á meðan það er hópur sem býr við kröpp kjör innan þessa aldurshóps heldur baráttan áfram.