störf þingsins.
Virðulegi forseti. Læknafélag Íslands hefur nú ályktað um það að með því að flytja rannsóknarhluta krabbameinsleitar í leghálsi til Danmerkur séu mikilvæg sérhæfð störf flutt úr landi. Þetta er líka álit Félags íslenskra kvensjúkdómalækna og fæðingarlækna, líka álit Félags rannsóknarlækna, álit embættis landlæknis og meiri hluta fagráðs um skimun fyrir leghálskrabbameini. Gegn áliti allra þessara fagaðila fór ráðherra. Þessir fagaðilar eiga það sameiginlegt að vilja allir að þættir skimunarferlisins verði framkvæmdir hérlendis.
Enn vantar niðurstöður úr 90% þeirra leghálssýna sem send hafa verið til Danmerkur síðan greiningin var flutt til heilsugæslunnar. Í Læknablaðinu lýsir Reynir Tómas Geirsson, fyrrverandi prófessor og forstöðulæknir kvennadeildar Landspítalans, efasemdum um þessar breytingar í legháls- og brjóstakrabbameinsleit. Hann óttast að mikilvæg þekking glatist hérlendis. Hæstv. ráðherra sagði í umræðum um þetta mál hér um daginn: Það getur ekki verið sérstakt hagsmunamál hvar sýnin eru greind heldur að þau séu rétt greind. Það er öryggismál.
Herra forseti. Hér er um öryggismál að ræða og það á ekki að skipta máli af hverjum verkið er unnið ef niðurstaðan er fagleg og skilvirk þjónusta fyrir alla. En það er orðið sjálfstætt viðfangsefni í þessu máli að efla traust fólks og ekki síst kvenna til þessa kerfis í ljósi þess hvernig að þessum breytingum hefur verið staðið. Það er tímabært að rýna málið, að rýna forsendur og afleiðingar. Við erum einfaldlega komin á þann stað að traustið er laskað. Málið og ferlið allt þarf þess vegna að skoða svo að traustið megi endurheimta.