störf þingsins.
Herra forseti. Samantekt Northstack, fréttavefs um nýsköpun, leiðir í ljós að í fyrra var fjárfest fyrir 29 milljarða kr. í 26 sprotafyrirtækjum. Í Markaðinum í dag er það haft eftir ritstjóranum að mikið fjármagn hafi streymt í nýsköpun en lítið verið fjárfest í nýjum tækifærum heldur hafi fénu verið varið í áframhaldandi uppbyggingu sprotafyrirtækja sem áður hafi fengið fjármagn. Vísisjóðirnir hérlendis séu meira og minna fullfjárfestir og hafi því ekki fjármagn til að leggja í ný fyrirtæki.
Þetta eru bæði góðar og vondar fréttir, góðar að því leyti að verið er að fjármagna vöxt fyrirtækja sem eru komin vel á legg en slæmar vegna þess að skortur er á fé til nýrri fyrirtækja. Þetta segir okkur að það þolir ekki bið að Kría, nýsköpunar- og sprotasjóður taki strax til starfa og það er reyndar óskiljanlegt hve langan tíma það hefur tekið hæstv. nýsköpunarráðherra að koma honum í gagnið, en lögin voru samþykkt í júní í fyrra.
En það þarf meira til. Umgjörð nýsköpunar þarf að vera mjög sterk og fyrirsjáanleg. Sem skref í þessa átt höfum við í Viðreisn lagt fram frumvarp um að festa í sessi sérstakar ívilnanir vegna rannsókna og þróunar sem voru ákveðnar til bráðabirgða í maí sl. Með þessari almennu leið verða til vel launuð störf í fyrirtækjunum. Fyrirtækin eflast, þau auka fjölbreytni í atvinnulífinu og skila þannig ávinningi til samfélagsins með framförum, sköttum og atvinnusköpun.