151. löggjafarþing — 56. fundur,  17. feb. 2021.

störf þingsins.

[13:44]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V):

Virðulegi forseti. Í gær ræddi ég við hæstv. forsætisráðherra um stöðu krónunnar. Það er eins og það hafi komið forsætisráðherra eitthvað á óvart að ég skyldi taka þetta upp. Það var talað um að ég væri hér í pólitík. Já, ég er í pólitík, harðkjarnapólitík, því að þetta varðar almannahagsmuni en ekki sérhagsmuni, sem mér finnst ríkisstjórnin vera að verja. Það er í grundvallarstefnu okkar í Viðreisn að fá stöðugan gjaldmiðil með tengingu við evru eða taka upp evru. Það þýðir ekki lengur fyrir íslensk heimili, fyrir atvinnulífið, fyrir velferðarkerfið, að búa við sveiflukenndan gjaldmiðil og sveiflukennt hagkerfi. Þegar ég spyr að því hvort ráðherrar í ríkisstjórn hafi rætt þá kúvendingu sem átti sér stað í peningamálum þjóðarinnar á síðasta ári voru svörin þau: Ekki tala krónuna niður. Það er reyndar gamall, vondur frasi. Ég vil á móti þakka forsætisráðherra þá trú að aumur formaður í stjórnarandstöðu geti talað niður heilan gjaldmiðil. Gott og vel. Látum það liggja á milli hluta.

Það sem skiptir hins vegar máli er að við sem erum stödd í þessum mikilvæga sal löggjafarvaldsins þurfum að fá samræðu. Við þurfum að fá samtal um það af hverju þessi kúvending átti sér stað. Og hvað erum við að tala um? Við studdum það að farið yrði í að fjármagna halla ríkissjóðs hér innan lands þar sem engin gengisáhætta er, inni í okkar krónubúblu. Nei, ríkisstjórnin stígur út fyrir, af því að hún hefur svo rosalega mikla trú á krónunni, og tekur erlend lán, ekki með háum vöxtum. En hvenær höfum við Íslendingar upplifað tímabil án gengisáhættu? Og ég vil minna á það að bara á síðasta ári jukust skuldir ríkissjóðs (Forseti hringir.) vegna gengisbreytinga um 45 milljarða. Það er mál að við tökum upp þetta málefni hér, þetta er gríðarlegt hagsmunamál fyrir (Forseti hringir.) íslenskan almenning, fyrir íslensk heimili og fjölskyldur, en ekki síður það hvernig við ætlum, virðulegi forseti, (Forseti hringir.) að verja velferðarkerfið til lengri tíma.