um fundarstjórn.
Herra forseti. Það er nú að koma í ljós að enn einu sinni að ég hafði rétt fyrir mér áðan þegar ég minntist á atburði gærdagsins. Nú er komið hér upp og beitt þeirri aðferð að menn skuli sekir þangað til að þeir sanni sakleysi sitt og þetta er enn ein birtingarmynd þess sem ég ræddi hér áðan, herra forseti. Forseti verður að taka í taumana núna vegna þess að þessi framkoma, þessi orðræða og að gera fólki upp skoðanir, er gersamlega fráleit. Það er í sjálfu sér áhugavert að hv. þingmaður skuli taka það upp að fyrra bragði að hann muni ekki biðjast afsökunar. Það hefur enginn beðið hann um það, ekki nokkur einasti maður. En ef hann finnur hjá sér einhvers staðar í kollinum þörf á því þá er það eitthvað sem hann verður að eiga við sjálfan sig því að það hefur enginn beðið hann um það, ekki nokkur maður.