um fundarstjórn.
Virðulegur forseti. Ég er vanur að biðjast afsökunar á því þegar ég geri eitthvað eða segi eitthvað sem ég sé síðan eftir eða tel að betur hefði mátt fara. Það er einfaldlega ekki tilfellið nú. Ég tek það fram bara til að hafa það á hreinu að það kemur ekki til greina, ég sé ekki eftir stöku orði sem ég lét falla í gær og ekki enn þá eftir neinu sem ég hef sagt í dag. Það sem ég sagði í gær var það að viljandi eða óviljandi, meðvitað eða ómeðvitað, er orðræða Miðflokksins í málinu sem við vorum að ræða í gær og öðrum málum sem varða útlendinga, til þess fallin að auka útlendingaandúð í landinu. Hvort sem það er ætlun Miðflokksins eða ekki þá ber hann ábyrgð á því. (Gripið fram í.) Ég mun halda áfram þessum málflutningi eins lengi og Miðflokkurinn heldur uppi sínum. Þannig er það. Verði það tekið til umræðu, að fara eitthvað að þagga niður í þingmönnum fyrir að gagnrýna Miðflokkinn, þá erum við komin á einhvern stað sem ég held að enginn annar þingmaður vilji hér á Alþingi.