151. löggjafarþing — 56. fundur,  17. feb. 2021.

um fundarstjórn.

[13:50]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Forseti teldi betur fara á því að menn ættu orðaskipti um þetta undir öðrum dagskrárlið en um fundarstjórn forseta. Að öðru leyti er það eitt að segja að það er í valdi þess forseta sem fundi stýrir hverju sinni, að leggja mat á orðfæri þingmanna og hvort gera þurfi athugasemdir við það en athafnir eða athafnaleysi forseta í slíkum tilvikum eru endanleg og þeirri niðurstöðu verður ekki áfrýjað.