Alþjóðaþingmannasambandið 2020.
Herra forseti. Ég þakka fyrir þessi svör. Það kemur að vísu á óvart að ekki skuli vera eitthvert utanumhald utan um boð af þessu tagi. Það er rosalega mikið af fundum, bara viðstöðulaust, það fylgir þingmannsstarfinu. En það er ósjaldan sem einhverjir fundir detta inn sem gætu höfðað til ákveðinna þingmanna og þegar þeir eru í boði, sérstaklega á vegum samtaka á borð við Alþjóðaþingmannasambandið, er nauðsynlegt að tryggt sé að þingmenn viti af þeim. Nú hef ég sótt á síðasta ári fjarfundi sem voru settir upp af Gavi-samtökunum með Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni um þetta mál. Gavi-samtökin tengjast þinginu ekki neitt, þeim bar engin skylda til þess að bjóða mér né nokkrum öðrum á fundinn. En á ég að trúa því að Gavi standi sig betur í því að tryggja aðkomu íslenskra þingmanna að svona opnum fundum en Alþjóðaþingmannasambandið og Íslandsdeildin? Ég held að við hljótum að geta gert betur þarna.