151. löggjafarþing — 56. fundur,  17. feb. 2021.

ÖSE-þingið 2020.

490. mál
[15:22]
Horfa

Rósa Björk Brynjólfsdóttir (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka formanni Íslandsdeildar ÖSE-þingsins fyrir framsögu hans hér og kynningu á ársskýrslunni. Það er ansi margt áhugavert í þessari skýrslu, m.a. hversu mikil vandræði ÖSE-þingið hefur upplifað núna í faraldrinum varðandi þinghaldið og fundina. Ég staldraði við nokkra hluti þar, bæði varðandi framlengingu á skipunartíma forseta og varaforseta ÖSE-þingsins, sem fulltrúar norsku og sænsku landsdeildanna lýstu óánægju sinni með, og sömuleiðis þá ágalla á starfsreglum ÖSE-þingsins að ekki sé hægt að kjósa í embætti án þess að halda ársfund þar sem þingmenn eru staddir í eigin persónu. Einnig það sem Andreas Nothelle, sérstakur fulltrúi ÖSE-þingsins gagnvart ÖSE, kom inn á á fjarfundi stjórnarnefndar 7. júlí 2020 á síðasta ári, þ.e. að ÖSE stæði frammi fyrir forystuvanda. Þarna eru ansi stór orð látin falla og þau raungerðust kannski í athugasemdum Asera og Tyrkja við framlengingu ráðningar Harlems Désirs og sömuleiðis fulltrúa Tadsíkistans sem gerðu athugasemd við framlengingu skipunartíma Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur.

Mig langar til að heyra aðeins meira frá hv. þm. Gunnari Braga Sveinssyni — og ég árétta að ég tek undir hugmynd hans um að halda fund hér á Íslandi, ég tel það vera afbragðs hugmynd og held að við ættum að beita okkur fyrir því — um hvers vegna ÖSE hefur greinilega átt svona erfitt um vik að halda úti fundum og starfinu í raun og veru þegar Evrópuráðsþingið hefur náð að halda nefndarfundi, kjósa nýjan skrifstofustjóra, (Forseti hringir.) framlengja setu þingforsetans o.s.frv. Vissulega hafa verið vandamál sem snúa að lýðræðislegri umræðu. (Forseti hringir.) Mig langar aðeins að heyra nánar um þetta í máli hv. þingmanns.