ÖSE-þingið 2020.
Herra forseti. Ég þakka andsvarið. Já, það er rétt hjá hv. þingmanni að gerðar voru athugasemdir við framlengingu hjá forseta og varaforsetum þingsins. Inn í það spila nokkrir þættir. Í fyrsta lagi spilar inn í það að mjög líklega hafa einhverjir haft áhuga á að bjóða sig fram til þessara embætta en séð fram á að það gæti ekki gerst akkúrat á þessum tíma. Í öðru lagi voru uppi spurningar um hvort stjórnarnefndin og skrifstofan gætu farið þá leið, samkvæmt reglum þingsins, að framlengja setu viðkomandi aðila. Í þriðja lagi rákum við okkur á það að lögin eru með þeim hætti að þau leyfa í sjálfu sér ekki annað en að kosið sé þegar menn hittast „físískt“.
Það sem að hluta til snertir hinar spurningarnar hjá hv. þingmanni er að reglurnar sem ÖSE býr við eru á suman hátt öðruvísi en t.d. hjá Evrópuráðsþinginu eins og ég hef skilið þetta. Þær eru býsna flóknar þegar kemur t.d. að því hvernig menn geta tekið til máls, lagt fram ályktanir og þess háttar. Á nánast öllum fundum eru einhver átök um túlkanir á þessum reglum. Nánast enginn fundur er haldinn þar sem ekki er tekist á um einhverjar túlkanir.
Það sem Andreas Nothelle segir er alveg rétt. Það er ákveðin forystukreppa vegna þess að í sjálfu sér var svo erfitt að taka á vandamálunum sem komu upp. Þegar ekki var vilji til þess hjá öllum að framlengja í þessum framkvæmdastjórum okkar sem höfðu staðið sig bara býsna vel kom t.d. í ljós að það voru í sjálfu sér engin tól til að taka almennilega á slíku, þ.e. að ræða það. (Forseti hringir.) Það var ekki hægt að ná umræðu eða einhvers konar vitrænu samráði yfir netið um svona viðkvæmt mál.