151. löggjafarþing — 56. fundur,  17. feb. 2021.

ÖSE-þingið 2020.

490. mál
[15:27]
Horfa

Rósa Björk Brynjólfsdóttir (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Ég árétta að ég held að í ljósi mikilvægis Öryggis-og samvinnustofnunar Evrópu og ÖSE-þingsins hljóti þingmenn að hafa nokkrar áhyggjur af þessu og gera sér far um að laga starfsreglur þingsins, sömuleiðis vegna mikilvægis kosningaeftirlits ÖSE-þingsins sem vissulega skiptir máli eins og við þekkjum líka úr starfi Evrópuráðsþingsins þar sem kosningaeftirlit er gríðarlega mikilvægt.

Mig langar í seinna andsvari að spyrja hv. þingmann aðeins um umræðuna er varðar baráttuna gegn gyðingahatri sem hv. þingmaður minntist á í framsögu sinni. Í skýrslunni kemur fram að í febrúar síðastliðnum hafi ÖSE-þingið haldið sérstaka umræðu um baráttu gegn gyðingahatri, mismunun og skort á umburðarlyndi. Þar sagði sérstakur fulltrúi formanns ÖSE í baráttunni gegn gyðingahatri að gyðingahatur væri vaxandi vandamál á ÖSE-svæðinu. Þetta höfum við líka séð alls staðar annars staðar og því miður vitna tölur um akkúrat þetta; vaxandi hatur sem við höfum kannski ekki getað trúað að við værum að tala um hér.

Mig langar kannski að nýta þetta tækifæri, vegna þess að þarna kemur fram umfjöllunin á vegum ÖSE-þingsins um þennan vanda og þessa ógn, og spyrja hvort hv. þingmaður styðji ekki við tillögu til þingsályktunar frá þeirri sem hér stendur um minningardag um fórnarlömb helfararinnar. Því miður er Ísland eina landið af aðildarríkjum ÖSE sem ekki heldur úti sérstökum minningardegi um fórnarlömb helfararinnar. Slíkur dagur væri vissulega mjög gott tækifæri til að uppfræða um þær hörmungar sem helförin var og fræða þær kynslóðir sem hafa kannski ekki sömu sögulegu vitund og við sem eldri erum. Væri hv. þingmaður ekki örugglega til í að styðja þá þingsályktunartillögu?