ÖSE-þingið 2020.
Herra forseti. Já, það má kannski segja að ríkt hafi ákveðið upplausnarástand innan ÖSE á þessu fordæmalausa ári. ÖSE virðist sérlega viðkvæmt fyrir því þegar ekki gefst tækifæri til mannfunda og samtala og samskipta í raunheimum, og það er ýmislegt sem veldur því. ÖSE er í eðli sínu samtalsvettvangur til þess að varðveita frið og friðsamleg samskipti. Ég get tekið undir það sem fram kom hjá hv. þm. Rósu Björk Brynjólfsdóttur um mikilvægi kosningaeftirlits. Ég hef tekið þátt í kosningaeftirliti og það er ákaflega mikilvæg starfsemi þó að ég verði að vísu að játa að ég treysti mér ekki til þess að taka þátt í slíku eftirliti á þessu ári.
Það er u.þ.b. ár síðan að við komum saman síðast á vetrarfundi í Vín. Manni finnst eiginlega eins og það séu mörg ár síðan vegna þess að þetta er í einhverri annarri vídd. Þar tók ég þátt í fundum nefndar sem ég á sæti í, sem er nefnd um lýðræðis- og mannréttindamál. Eins og fram kom í skýrslu hv. þm. Gunnars Braga Sveinssonar, formanns okkar, var m.a. á vettvangi þeirrar nefndar sérstök umræða um baráttu gegn gyðingahatri og mismunun og skort á umburðarlyndi. Þar talaði Andrew Baker, sem er rabbíni og sérlegur fulltrúi formanns ÖSE í baráttunni gegn gyðingahatri. Hann talaði um að gyðingahatur væri vaxandi vandamál á ÖSE-svæðinu. Ég verð að vísu að gera þá játningu sjálfur að ég deili ekki alveg þeim sjónarmiðum sem komu fram hjá Andrew Baker í skilgreiningum hans á gyðingahatri sem mér þóttu nokkuð víðar. Hann tengir gagnrýni á Ísrael og gagnrýni á Ísraelsríki nokkuð afdráttarlaust við gyðingahatur, sem ég get ekki fallist á. Eins tengir hann við gyðingahatur viðleitni sem komið hefur fram til að banna umskurð sveinbarna, sem mér þykir sömuleiðis vera oftúlkun að kenna við gyðingahatur frekar en vernd ungbarna.
Ýmsir ávörpuðu fund þessarar nefndar um lýðræði og mannréttindamál, t.d. formaður nefndar ÖSE um lýðræðis- og mannréttindamál, Ivo Srámek, sem er Tékki. Hann talaði um áherslur nefndarinnar fyrir árið 2020 sem snerist um að auka þátttöku þjóðþinga í málefnum ÖSE og sérstaklega að reyna að koma í veg fyrir pyntingar. Það var líka sérstök umræða um alþjóðlegt samstarf um mannréttindi. Þarna töluðu einnig Michelle Bachelet Jeria, sem er mannréttindastjóri Sameinuðu þjóðanna, og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, framkvæmdastjóri Mannréttinda- og lýðræðisstofnunar ÖSE (ODHIR). Ingibjörg Sólrún minnti á hvað það er mikilvægt að líta yfir farinn veg og standa vörð um þann árangur sem áunnist hefur í alþjóðlegu samstarfi á undanförnum áratugum. Hún minnti á þann mikla árangur sem náðst hefur í baráttunni fyrir mannréttindum á þeim á 30 árum sem liðið hafa frá því að mótmæli sameinuðu Evrópu á ný. Hún sagði að það væri þó áhyggjuefni hvað klofningur hefði aukist meðal stjórnmálamanna og almennings. Það væru sífellt fleiri sem litu á einstaklinga með ólíkar skoðanir sem óvini sína. Ingibjörg Sólrún ítrekaði að helförin hefði ekki dottið af himnum ofan. Hún hefði átt sér aðdraganda og það væri mikilvægt að bregðast ekki við ýmsum váboðum með afskiptaleysi.
Sjálfur talaði ég þarna í almennum umræðum á vettvangi þessarar nefndar. Þar vakti ég máls á aðskilnaði barna frá fjölskyldum sínum á landamærum Bandaríkjanna og Mexíkó. Bandarísk stjórnvöld hafa fangelsað fólk sem kemur til landsins á svokallaðan ólöglegan hátt og börn þeirra einstaklinga eru skilin frá foreldrum sínum og komið fyrir hjá félagsmálayfirvöldum. Þrátt fyrir dómsúrskurð 2018 hefðu um 900 börn verið skilin frá foreldrum sínum frá því að sá úrskurður féll. Þessi aðskilnaður væri langur, að meðaltali meira en 150 dagar og aðstæður barnanna væru óboðlegar. Ég benti á að bandarísk stjórnvöld nýttu sér þennan fjölskylduaðskilnað til að fæla fólk á faraldsfæti og hælisleitendur frá því að leita til Bandaríkjanna. Þess má geta að fulltrúar Bandaríkjamanna eru mjög ötulir við að taka þátt í umræðum um mannréttindi og mannréttindabrot í öðrum löndum en þeir brugðust ekki við þessum ábendingum mínum.
Mig langar í lokin að nefna aðeins störf Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, sem var, eins og fyrr segir, framkvæmdastjóri Mannréttinda- og lýðræðisstofnunar ÖSE. Þegar kom að því að endurnýja það starf setti Tadjekistan sig upp á móti skipan hennar og Tyrkir tóku undir með þeim afleiðingum að allir fjórir yfirmenn ÖSE létu af störfum. Þetta var nú, virtist mér, mjög að undirlagi Tyrkja sem höfðu farið fram á það við Ingibjörgu Sólrúnu að hún útilokaði tiltekin félagasamtök frá fundum stofnunarinnar á þeim forsendum að það væru hryðjuverkasamtök. Það voru sem sagt hryðjuverkasamtök að mati tyrkneskra yfirvalda þó að Ingibjörg Sólrún og hennar stofnun hefðu engar forsendur til að taka slíka ákvörðun og engar sannanir fyrir þeim áburði. Hún gat ekki farið að útnefna einhver samtök sem hryðjuverkasamtök, það dugði ekki að tyrknesk yfirvöld staðhæfðu slíkt, enda hafa tyrknesk yfirvöld verið nokkuð dugleg við að kenna andstæðinga sína við hryðjuverkastarfsemi. Það hvernig Ingibjörgu Sólrún stóð uppi í hárinu á tyrkneskum yfirvöldum gerði það að verkum að tyrknesk yfirvöld settu sig upp á móti endurráðningu hennar. Eins og kom fram í máli hv. þm. Gunnars Braga Sveinssonar hér áðan held ég að þær aðstæður, það upplausnarástand sem ríkir hjá ÖSE núna hafi m.a. stuðlað að því að svo fór sem fór, þ.e. að ekki var hægt að útkljá málið eins og fólk gerir í samræðum.