151. löggjafarþing — 56. fundur,  17. feb. 2021.

framleiðsla innrennslisvökva til notkunar í lækningaskyni.

131. mál
[16:45]
Horfa

Flm. (Ólafur Þór Gunnarsson) (Vg):

Herra forseti. Ég flyt hér tillögu til þingsályktunar um framleiðslu innrennslisvökva til notkunar í lækningaskyni. Þingmennirnir Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir og Lilja Rafney Magnúsdóttir eru meðflutningsmenn mínir á þessari tillögu. Tillagan, sem má að sumu leyti líta á sem skýrslubeiðni, hljóðar svo:

Alþingi ályktar að fela heilbrigðisráðherra að kanna hagkvæmni þess að hefja að nýju framleiðslu innrennslisvökva og innrennslislyfja til heilbrigðisþjónustu hér á landi. Sérstaklega verði metið öryggi, kostnaður og umhverfisþættir slíkrar framleiðslu. Ráðherra skili Alþingi skýrslu eigi síðar en 1. maí 2021.

Það er ekki í fyrsta sinn sem sá sem hér stendur hefur flutt þetta mál, líklega er þetta þriðja sinni sem ég flyt málið, en það er nú endurflutt lítið breytt en þó efnislega óbreytt. Árið 2002 var framleiðslu innrennslisvökva hjá Lyfjaverslun Íslands hætt. Fram til þess höfðu slíkir vökvar að mestu leyti verið framleiddir innan lands. Flóknari og sjaldgæfari lyfjasamsetningar, og jafnvel vökvar, voru hins vegar framleiddar erlendis og fluttar inn.

Í nóvember 2005 var birt skýrsla starfshóps á vegum Landspítala – háskólasjúkrahúss, sem er hér í fylgiskjali. Í niðurstöðum hópsins kom m.a. fram að árlega væri þörf á u.þ.b. 230.000 lítrum, þegar saman væru taldir innrennslis-, skol- og leysivökvar, hjá heilbrigðisstofnunum ríkisins. Þá væri ótalin þörf á um 120.000 lítrum af skilunarvökva sem einnig eru fluttir inn. Í skýrslunni er þörfin á aukinni framleiðslu tiltekinna vökva jafnframt talin vera allt að 1.000.000 lítrar vegna mögulegra áfalla. Þrátt fyrir að þessar tölur séu 15 ára gamlar má ætla að vökvaþörfin sé stórt séð svipuð, þó líklega aðeins meiri vegna fólksfjölgunar og hækkandi aldurs þjóðarinnar, og svo hins að verið er að nota þessa vökva á fleiri stofnunum en stofnunum á vegum ríkisins eða opinberra aðila.

Birgðahald vegna vökva yfir 300.000 lítrum er töluvert, einkum ef gera á ráð fyrir áföllum eða ef tímabundin þörf eykst, t.d. vegna inflúensu eða faraldurs vegna kórónuveiru. Staðan getur þannig breyst mjög hratt og þörfin fyrir aukna framleiðslugetu getur breyst mjög hratt. Komið hefur í ljós, til að mynda í yfirstandandi faraldri, að á nokkrum mánuðum eða vikum þurfa nánast öll ríki hins vestræna heims allt í einu á því að halda að fá auknar birgðir af alls konar aðföngum. Skemmst er að minnast þess að um tíma í vor er leið eða síðla vetrar, ef ég man rétt, vantaði um tíma t.d. sýnatökupinna til að taka sýni úr nefkoki og koki. Síðan er líka hitt að þegar stór áföll dynja yfir getur orðið erfitt að koma aðföngum til landsins, til að mynda í náttúruhamförum á borð við eldgos. Er í þessu tilliti skemmst að minnast Eyjafjallagossins sem kom í veg fyrir mjög stóran hluta flugferða um Norður-Evrópu. Hins vegar myndaðist þá ekki sú staða hér á landi að við gætum ekki fengið vökva og það slapp til. En málið er að þetta getur gerst nánast á einni nóttu og birgðahaldið þarf þá annaðhvort endurspegla það eða þá einhvers konar framleiðslugetu í landinu og hún er sem stendur í rauninni ekki til. Þá er einnig hægt að horfa til þess að sótspor kemur af því að flytja inn vökva í þessum mæli, ég tala nú ekki um ef skyndilega þarf miklu meiri vökva. Það getur verið umtalsvert, enda getur þurft nokkur hundruð tonn af vökva hingað til lands.

Í skýrslunni sem ég gat um áðan er talið að með innlendri framleiðslu á hluta þess magns sem um ræðir myndu skapast 16 störf, þar af mörg sem krefjast sérhæfðrar kunnáttu. Eðli máls samkvæmt hlytist af stofnkostnaður vegna uppbyggingar, en lagt er fyrir ráðherra að kanna kostnaðaráhrif.

Ég vil meina að við sem þjóð, eða heilbrigðiskerfið, getum eftir atvikum framleitt nauðsynlegustu innrennslisvökva. Má í rauninni segja að þetta sé nokkurs konar þjóðaröryggismál. Þetta varðar mjög mikilsverða þætti í rekstri alls heilbrigðiskerfisins. Við erum ekki í færum til að bregðast við með þeim hraða sem á þyrfti að halda ef hamfarir dynja yfir. Því er markmið tillögunnar að ráðherra láti kanna hvort innlend framleiðsla yrði hagkvæm, að teknu tilliti til allra framangreindra þátta, þ.e. öryggis, kostnaðar og umhverfissjónarmiða.

Virðulegi forseti. Skýrslan sem ég nefndi er í fylgiskjali með tillögunni og ég hvet hv. þingmenn til að kynna sér hana. Mér er líka kunnugt um að eitthvað verður til af nýrri gögnum um þetta, þ.e. eftir framlagningu tillögunnar, og það væri því mjög þarft ef ráðuneyti heilbrigðismála léti slíka könnun fara fram hið fyrsta svo að við vitum hvar við stöndum með tilliti til þessa öryggisþáttar.

Herra forseti. Ég ætla ekki að hafa fleiri orð um þetta en legg til að málið fari til hv. velferðarnefndar.