151. löggjafarþing — 56. fundur,  17. feb. 2021.

40 stunda vinnuvika.

133. mál
[16:54]
Horfa

Flm. (Þorsteinn B Sæmundsson) (M):

Hæstv. forseti. Ég flyt nú í fjórða sinn frumvarp til laga um breytingu á lögum um 40 stunda vinnuviku, nr. 88/1971, þ.e. lögbundnir frídagar. Frumvarpið er mjög einfalt. Í 1. gr. segir, með leyfi forseta:

„Í stað orðanna „og 17. júní“ í 1. mgr. 6. gr. laganna kemur: 17. júní og 1. desember.“

Í 2. gr. segir:

„Lög þessi öðlast þegar gildi.“

Mig langar að lesa greinargerðina sem er örstutt.

Frumvarp þetta var áður lagt fram á 148., 149. og 150 löggjafarþingi. Hinn 1. desember 2018 voru liðin hundrað ár frá því að Ísland varð frjálst og fullvalda ríki með gildistöku sambandslaganna. Af því tilefni voru margvísleg hátíðahöld á árinu, m.a. á vegum Alþingis, enda vel við hæfi að svo mikilvægra tímamóta í lífi þjóðarinnar væri minnst með jákvæðum og afgerandi hætti. Á sama grundvelli er því lagt til með frumvarpi þessu að hér eftir verði 1. desember ár hvert lögbundinn frídagur.

Í lögum um 40 stunda vinnuviku, nr. 88/1971, er nú, auk helgidaga þjóðkirkjunnar, sérstaklega kveðið á um fjóra heila frídaga: sumardaginn fyrsta, fyrsta mánudag í ágúst — sem heitir frídagur verslunarmanna þó svo að verslunarmenn eigi ekki frí — 1. maí, baráttudag verkalýðsins, og þjóðhátíðardag Íslendinga 17. júní.

Að mati flutningsmanna hefur enginn þessara daga haft í för með sér jafnmiklar grundvallarbreytingar á sögu og lífi íslensku þjóðarinnar og fullveldisdagurinn 1. desember 1918; dagurinn sem markaði fullnaðarsigur í sjálfstæðisbaráttu Íslendinga. Með því er ekki gert lítið úr sögu eða mikilvægi áðurnefndra daga, sem að sönnu er ærið. En í ljósi þess að mælt er fyrir um að þessir fjórir dagar skuli vera almennir frídagar samkvæmt lögum um 40 stunda vinnuviku, og þeir þannig festir í sameiginlegt minni þjóðarinnar, telja flutningsmenn eðlilegt og rétt að fullveldisdagurinn 1. desember verði jafnframt gerður að frídegi og mikilvægis hans verði þannig minnst um alla framtíð.

Herra forseti. Án þess að ég ætli að tefja þessa umræðu þá held ég að mikilvægi dagsins hafi ekki runnið upp fyrir mörgum fyrr en haldið var upp á 100 ára afmæli þessa atburðar, hinn 1. desember 2018. Þá voru mörg hundruð sjálfsprottnir atburðir úti um allt land til að minnast þess arna. Í sjálfu sér held ég að við þurfum sem þjóð að kunna sögu okkar bærilega. Þá er ég ekki bara að tala um frá söguöld og ég er ekki bara að tala um nútímasöguna heldur að við kunnum skil á þeirri baráttu sem skilaði okkur að endingu fullveldi þann 1. desember 1918.

Herra forseti. Ég verð að viðurkenna að sjálfur hef ég fyllst aðdáun yfir því að íslenska þjóðin skyldi á þeim tíma stíga þetta skref, einmitt þetta ár þegar gekk á með þvílíkum hörmungum, eldgosum, hafís, drepsótt, sem lagði hlutfallslega þó nokkuð fleiri að velli en sú farsótt sem við eigum við núna öllum þessum árum seinna og með nútímatækni; farsóttin 1918 felldi miklu fleiri Íslendinga hlutfallslega. Við þær aðstæður stigu menn fram og ákváðu að Ísland ætti að vera fullvalda ríki.

Það er eitt atriði sem mér finnst persónulega alltaf standa upp úr en það er að á þessum degi, 1. desember 1918, stofnuðu nokkrir prófessorar í Háskóla Íslands, sem þá var staðsettur í þessu húsi, vísindafélag. Þeir sögðu við sjálfa sig: Þjóð sem er orðin fullvalda og sjálfstæð á að hafa vísindafélag. Þeir stofnuðu vísindafélag og mér finnst það sterkur vitnisburður um þann eld sem bjó í brjósti fólks á þessum tíma. Með mikilli virðingu, herra forseti, finnst mér stundum eins og við tökum öllu því sem við búum við sem sjálfsögðum hlut, þar á meðal sjálfstæði og fullveldi þjóðarinnar. Og sumum okkar virðist ekkert sérstaklega sýnt um að við séum áfram sjálfstæð og fullvalda þjóð eins og kemur fram í máli margra þingmanna hér um bil á hverjum einasta degi. Því er kannski meiri nauðsyn á því nú, herra forseti, en löngum áður að við kunnum þessa sögu, Íslendingar, að við vitum hverjir það voru sem ruddu brautina og að við sýnum þeim sóma. Með því ætla ég reyndar að skjóta inn í að ég ætla síður en svo að gera lítið úr því að Háskóli Íslands hefur haldið upp á þennan dag og eiginlega forðað honum frá algjörri niðurlægingu með því að halda hátíð ár hvert sem undanfarin ár hefur verið helgaður íslenskum doktorum og doktorsnemum, sem er að góðu gert.

Ég segi aftur: Við þurfum að læra að meta það sem við höfum. Við þurfum að læra að meta það sem við eigum, sjálfstæðið, fullveldið, tunguna. Þess vegna eigum við að gefa fólki og fjölskyldum, börnum, færi á því að vita af hverju dagurinn er merkilegur. Við eigum að halda upp á þennan dag vegna þess að þessi dagur og sess hans í sögu þjóðarinnar er það stór að hann á það skilið og brautryðjendurnir allir eiga skilið að þetta sé gert.

Það hafa komið fram mótbárur við frumvarpið þess efnis að við séum að stíga inn í samkomulag aðila vinnumarkaðarins. Ég tel að svo sé ekki vegna þess að hér á Alþingi erum við á hverjum einasta degi að samþykkja lög og reglur sem annaðhvort herða reglur sem beinast að almenningi og fyrirtækjum eða létta þær. Okkur verður ekki skotaskuld úr því að koma þessum frídegi fyrir. Ég minni á að nú er uppi vilji víða í þjóðfélaginu til að auka gæðastundir sem fjölskyldur geta átt saman. Hví þá ekki að halda myndarlega upp á 1. desember ár hvert og eiga góða stund með fjölskyldunni og minnast þeirra brautryðjenda sem ruddu brautina og gerðu það kleift að við urðum sjálfstæð þjóð?

Ég vona að frumvarpið fái nú í fjórða sinn, því það er fullreynt þegar fernt er, vandaða umfjöllun í nefnd og snögga og komi hingað aftur til kasta þingsins og verði samþykkt að því loknu.