151. löggjafarþing — 57. fundur,  18. feb. 2021.

hálendisþjóðgarður og ferðaþjónusta.

[13:21]
Horfa

Hanna Katrín Friðriksson (V):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin og átta mig fyllilega á því að það eru fleiri verkefni á borði ráðherra sem tengjast hálendisþjóðgarðinum, eins og orkumál, og þau verða án nokkurs vafa rædd síðar. En ferðaþjónustan er í svolítið í sviðsljósinu núna, ekki síst vegna þeirra erfiðleika sem greinin á við að etja vegna Covid. Þegar upp er staðið er hægt að skipta þessu í tvennt, það er mótstaða við frumvarpið af því að menn hafa ekki haft tíma til að kynna sér það eða það er mótstaða við frumvarpið af því að menn segja að það þurfi að breyta því á einhvern hátt. Það er eiginlega það sem mig langar til að reyna að fá fram hjá hæstv. ráðherra, varðandi þessa tilteknu atvinnugrein, ferðaþjónustuna: Hver er óskastaðan fyrir framhaldið? Ég held að við hæstv. ráðherra séum sammála um að þjóðgarður á hálendi Íslands geti orðið gríðarleg lyftistöng fyrir ferðaþjónustuna. En snýst þetta þá um það að við þurfum bara lengri tíma til að kynna þetta frumvarp fyrir aðilunum? (Forseti hringir.) Eða snýst þetta um það að það þurfi að laga þetta frumvarp að einhverju leyti betur að ferðaþjónustunni og þar með að aðgengi fólks að hálendinu?