151. löggjafarþing — 57. fundur,  18. feb. 2021.

uppfærð markmið Íslands fyrir aðildarríkjafund loftslagssamnings Sameinuðu þjóðanna (COP26).

[14:22]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P):

Herra forseti. Ég þakka fyrir þessa umræðu sem við höfum átt hér í dag. Aðgerðir gegn loftslagsbreytingum eru að miklu leyti tæknilegt úrlausnarefni og þess vegna er mjög bagalegt hversu veik stjórnsýsla loftslagsmála er, eins og skýrslur hafa sýnt, eins og reynslan er farin að sýna. Það er í rauninni furðulegt að rúmum þremur árum eftir að hæstv. ráðherra settist í embætti sé það enn staðan.

Jú, jú, öll lönd féllu á fresti til að skila uppfærðum landsmarkmiðum til loftslagssamningsins fyrir ári, alveg eins og Ísland, nema Noregur reyndar sem er í sömu stöðu á Ísland. Og jú, jú, mörg lönd stóðust ekki nýja frestinn sem var í desember síðastliðnum. Hins vegar gátu öll Evrópuríki skilað á þeim tíma nema Ísland. Þetta er grundvallarplagg í baráttunni við loftslagsbreytingar af mannavöldum, grundvallarplagg í allri stefnumörkun ríkisins og Ísland féll á tveimur tímafrestum á síðasta ári að skila. Það segir sitt um þann forgang sem hefur verið settur í að styrkja stjórnsýslu loftslagsmála á síðustu þremur árum. Ef ég skildi ráðherrann rétt þá á ekki einu sinni að huga að því að uppfæra aðgerðaáætlunina fyrir kosningar. Væntanlega vilja þau geyma góðu hugmyndirnar fyrir kosningabaráttu.

Hér hefur fólk verið sakað um yfirboðagagnrýni með því að tala fyrir því að Ísland leggi einfaldlega fram markmið sem Ísland á að ná, vegna þess að þau er ekki að finna í uppfærðum landsmarkmiðum. (Gripið fram í.) Þar stendur einfaldlega að Ísland ætli að vera í samfloti með ESB, sem er gott og blessað, en það samflot á ekki að taka af Íslandi þá ábyrgð að standa skil á sinni eigin prósentu gagnvart Parísarsamningnum. 40% í síðasta landsmarkmiði voru prúttuð niður í 29% gagnvart ESB þó að ráðherranum (Forseti hringir.) þyki óþægilegt að kalla það það. Samningaviðræður við ESB leiddu til þess að Ísland fékk 11 prósentustiga afslátt af losunarmarkmiðum. (Forseti hringir.) 55% eru hvergi sett fram sem sjálfstætt markmið Íslands í samdrætti í losun. (Forseti hringir.) Það er hreinlega rangt þegar hv. þm. Ari Trausti Guðmundsson heldur öðru fram.

(Forseti (GBr): Tímamörkin eru tvær mínútur.)