151. löggjafarþing — 57. fundur,  18. feb. 2021.

uppfærð markmið Íslands fyrir aðildarríkjafund loftslagssamnings Sameinuðu þjóðanna (COP26).

[14:25]
Horfa

umhverfis- og auðlindaráðherra (Guðmundur Ingi Guðbrandsson):

Hæstv. forseti. Fyrir daga ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur hafði ríkt kyrrstaða í loftslagsmálum á Íslandi. Engin áætlun um samdrátt í losun var til, engin stefna um kolefnishlutleysi, engin stefna eða áætlun um aðlögun samfélagsins að loftslagsbreytingum. Stjórnkerfið hafði enga pólitíska leiðsögn til að fara eftir. En nú hefur blaðinu hins vegar algerlega verið snúið við og við erum komin á fullt skrið. Stjórnsýsla loftslagsmála hefur verið stórbætt. Við erum með fjármagnaða aðgerðaáætlun sem hefur litið dagsins ljós. Við vinnum nú að vegvísi um kolefnishlutleysi. Við vinnum að stefnu um aðlögun. Við höfum aukið fjármagn bara í umhverfisráðuneytinu um 700% á þessu kjörtímabili og það dreifist á fjölbreyttar aðgerðir.

Skuldbindingar Íslands prúttaðar niður. Þessu heldur enginn fram nema örfáir þingmenn í pólitískum tilgangi. Þetta er útreiknað sanngirnisviðmið ESB þar sem eitt gengur yfir alla. Við skulum hafa þær staðreyndir á hreinu, líka hér í þingsal Alþingis. (Gripið fram í: Þetta er lágmark.) Og að það eina sem gerist sé í atvinnulífinu stenst enga skoðun heldur. Þessu verð ég að mótmæla. Komið hefur verið á ívilnunum í almenningssamgöngum, fyrir rafbíla, hjól, rafhjól o.s.frv. Styrkir til innviðauppbyggingar hafa aldrei verið meiri, grænar fjárfestingar og skattalegir hvatar, tvöföldun skógræktar, tvöföldun landgræðslu, tíföldun í endurheimt votlendis, efling hringrásarhagkerfis, efling niðurdælingar í berg og svona mætti lengi telja.

Það er hins vegar til marks um breytta tíma þegar þingheimur er sammála um að gera betur í loftslagsmálum og því fagna ég innilega. Ég veit og ég er sannfærður um að við munum halda áfram á þeirri braut í sameiningu. Við erum ljósár frá kyrrstöðunni sem ríkti í loftslagsmálum í upphafi kjörtímabilsins (Forseti hringir.) og svo skulum við í sameiningu setja okkur enn metnaðarfyllri markmið og keyra áfram aðgerðir til árangurs.