151. löggjafarþing — 58. fundur,  23. feb. 2021.

Frestun á skriflegum svörum.

[13:01]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Borist hefur bréf frá mennta- og menningarmálaráðherra þar sem óskað er eftir fresti til þess að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 861, um fjölda nema í iðn- og verknámi, frá Bjarkeyju Olsen Gunnarsdóttur.

Einnig hefur borist bréf frá ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra þar sem óskað er eftir fresti til að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 784, um samkeppniseftirlit, frá Birni Leví Gunnarssyni.