151. löggjafarþing — 58. fundur,  23. feb. 2021.

staðgreiðsla við innborgun í lífeyrissjóð.

128. mál
[14:17]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni ræðuna og þessa þingsályktunartillögu sem ég hygg að hafi komið fram áður og að ég hafi væntanlega jafnframt tekið þátt í umræðu um hana áður við hv. þingmann. Það er svo gaman að eiga samtal við hv. þingmann.

Mig langar að deila áhyggjum mínum af framtíðinni með hv. þingmanni, þ.e. þeim áhyggjum að þjóðin er að eldast og þar af leiðandi verður það sem kallað hefur verið hækkandi framfærsluhlutfall, þ.e. að fleiri og fleiri munu verða eldri borgarar, eins og við höfum skilgreint það, komnir út af vinnumarkaði, á meðan færri eru á vinnumarkaði til að standa undir velferðarkerfinu. Þannig voru 5,6 vinnufærir einstaklingar á hvern 67 ára og eldri árið 2012 en árið 2061 er því spáð að það verði komið niður í 2,4 vinnufæra einstaklinga.

Þá velti ég þeirri spurningu upp, í samræmi við þingsályktunartillöguna sem hér liggur fyrir um að breyta þessu þannig að tekinn verði tekinn skattur af inngreiðslunum í staðinn fyrir útgreiðslum úr lífeyrissjóði, hvort hv. þingmaður óttist ekki hvernig hægt verði að standa undir því velferðarsamfélagi, sem ég hygg að við hv. þingmaður séum sammála um, til langrar framtíðar ef taka á skatttekjur af inngreiðslunum og verja með þeim hætti sem hv. þingmaður kom inn á. Hvernig munum við til framtíðar geta staðið undir því velferðarsamfélagi sem við viljum sjá, hv. þingmaður, þegar við sjáum færri og færri vinnandi hendur á hvern ellilífeyrisþega?