málefni aldraðra.
Herra forseti. Ég mæli fyrir máli sem ég hef áður flutt hér í þingsölum, um breytingu á lögum um málefni aldraðra annars vegar og sem hliðarafurð af þessu máli er síðan breyting á lögum um heilbrigðisþjónustu, með síðari breytingum, og lög um lögheimili og aðsetur, sem eru sjálfkrafa fylgifiskar þessa máls. Meðflutningsmenn með mér á þessu máli eru eftirtaldir hv. þingmenn: Helgi Hrafn Gunnarsson, Guðjón S. Brjánsson, Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, Lilja Rafney Magnúsdóttir, Kolbeinn Óttarsson Proppé, Ari Trausti Guðmundsson, Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir og Hanna Katrín Friðriksson.
Frumvarpið gengur út á það að tryggja að makar íbúa á hjúkrunarheimilum fái tækifæri til þess og hafi rétt til þess samkvæmt lögum að halda áfram sambúð með ástvinum sínum þó að þeir flytji á hjúkrunarheimili. Mörgum kann að þykja þetta liggja nokkuð í augum uppi en þetta er ekki alveg einfalt. Eins og hv. þingmenn þekkja eru í gildi lög í landinu sem snúa til að mynda að því að til þess að geta átt heimili á hjúkrunarheimili þurfi viðkomandi að hafa undirgengist svokallað færni- og heilsumat. Þess vegna þarf í lagafrumvarpi eins og þessu að búa þannig um hnútana að ákveðin undanþága fáist frá þessu mati.
Ég ætla að lesa fyrstu efnisgrein því að hún skýrir í rauninni restina, hin ákvæði frumvarpsins leiða af því fyrsta. Þetta er viðbót við lög um málefni aldraðra og hljómar þannig, með leyfi forseta:
„Við 14. gr. laganna bætast tvær nýjar málsgreinar, svohljóðandi:
Heimilismaður sem dvelur til langframa á stofnun fyrir aldraða skal eiga kost á að vera samvistum við maka eða sambúðarmaka sinn þar þegar aðstæður leyfa. Maki skal greiða sanngjarna leigu vegna veru sinnar og greiða þann kostnað sem af dvöl hans hlýst. Maki skal eftir atvikum hafa aðgang að þjónustu stofnunarinnar gegn gjaldi. Maki samkvæmt þessari málsgrein er undanþeginn“ — mikilvægt að taka þetta fram, undanþeginn — „færni- og heilsumati og skal eiga lögheimili utan stofnunarinnar. Maki eða sambúðarmaki getur dvalið á öldrunarstofnuninni í allt að átta vikur eftir fráfall heimilismanns. Á þeim tíma skal meta hvort forsendur eru fyrir áframhaldandi dvöl á stofnuninni og fellur dvalarréttur niður nema niðurstaða færni- og heilsumats skv. 15. gr. verði að forsendur séu fyrir áframhaldandi búsetu og öðlast þá viðkomandi sjálfstæðan rétt sem heimilismaður á stofnun fyrir aldraða.“
Í næstu greinum eru síðan reglugerðarákvæði. 2. gr. snýr að undanþágu frá færni- og heilsumati, með vísan í 1. gr. frumvarpsins, 4. gr. snýr að lögum um heilbrigðisþjónustu en þar er aftur vísað í það sama og loks er bætt við lög um lögheimili og aðsetur ákvæði um sambúð maka á hjúkrunarheimili eða dvalarheimili samkvæmt viðeigandi lögum.
Sambærilegt frumvarp hefur verið flutt hér áður. Þetta er alls ekki í fyrsta sinn. Rétt er að nefna, sem ég sé að hefur dottið út úr greinargerðinni, að hæstv. heilbrigðisráðherra Svandís Svavarsdóttir flutti fyrst mál sambærilegs efni hér fyrir þinginu og gaman að segja frá því að á þeim tíma skrifaði sá sem hér stendur umsögn með því máli þar sem ég reifaði með hvaða hætti væri skynsamlegast að gera þetta. Í rauninni má segja að núverandi frumvarp sé nokkurs konar afurð af þeim undanfara. Málið snýr að mikilvægum réttindum. Þetta snýr að því að tapi einhver heilsu sinni þannig að hann geti ekki sjálfur algerlega séð um sig eða makinn geti ekki algjörlega staðið undir því að styðja við viðkomandi á því heimili sem þeir eru þá þurfi það ekki að þýða að viðkomandi þurfi að slíta samvistum í raun. Þetta geta verið mjög sársaukafull tilvik þegar þau koma upp. Í mörgum tilfellum er alls ekki sóst eftir þessu sambýli. Oft eru veikindi þess sem flyst inn á hjúkrunarheimili þess eðlis að þau hafa kannski gert makanum erfitt fyrir og hann er kannski ekki lengur í standi til að búa áfram með viðkomandi á sama hátt og áður. Þá leiðir ekkert af sjálfu að menn sækist endilega eftir þessum réttindum. En þetta þarf að mínu mati að vera til staðar þegar fólk vill það.
Vegna þess að við erum ekki komin þangað sem við vildum vera, að mínu mati, að allir sem búa á hjúkrunarheimilum eigi kost á að búa í einbýli á þessum heimilum þá er ekki hægt að hafa, að svo stöddu a.m.k., textann í 1. gr. frumvarpsins algjörlega fortakslausan. Þess vegna er hann orðaður eins og kemur fram í 1. málslið 1. gr., „þegar aðstæður leyfa“. Í greinargerðinni er útskýrt að þetta geti til að mynda átt við þar sem um er að ræða að maka bjóðist eingöngu rými í tvíbýli eða þá t.d. að viðkomandi sé á lokaðri deild, þar sem það kann að vera mjög íþyngjandi fyrir maka að þurfa að sæta þeim reglum sem deildin kann að setja, eða aðrar ástæður eru að baki. Eins og ég nefndi áðan getur enginn samkvæmt núgildandi lögum búið á dvalar- eða hjúkrunarheimili án þess að hafa undirgengist færni- og heilsumat. Þess vegna er undanþágan svo mikilvæg. Þar af kemur þetta samræmi sem er svo mikilvægt að hafa.
Eðli málsins samkvæmt þarf líka að búa þannig um hnútana að makinn sem flytur á heimilið hafi aðgang að þeirri þjónustu sem heimilið býður upp á, það sé ekki bara búsetan sem fylgi. Þá þarf reglugerðarheimild ráðherra til að ákveða með hvaða hætti það verður nákvæmlega. Það getur verið mikið hagræði af því að viðkomandi geti til að mynda sótt hjúkrunar-, læknis- eða sjúkraþjálfunarþjónustu á staðnum og aðra þá þjónustu sem þar kann að bjóðast. Það þarf líka að búa þannig um hnútana að þegar um fráfall heimilismanns er að ræða sé makanum ekki beinlínis ýtt út af heimilinu samdægurs heldur fái hann nægan umþóttunartíma til að bregðast við nýjum aðstæðum. Á sama hátt hafi hjúkrunarheimili eða dvalarheimili ráðrúm til að gera færni- og heilsumat, óski viðkomandi eftir því, þannig að þá sé hægt að meta hvort forsendur fyrir áframhaldandi búsetu séu fyrir hendi.
Eins og ég nefndi áðan, herra forseti, er að mínu mati um ákveðið réttindamál að ræða. Það skiptir töluverðu máli að við horfum svolítið til þess sem samfélag að þegar við eldumst og aðstæður okkar breytast geri samfélagið ekki neitt til að auka á þá félagslegu erfiðleika sem kunna að verða af breytingunni. Samfélagið reyni miklu frekar að vinna með þessum einstaklingum og þegar hægt er og það er vilji af allra hálfu til að taka svona á málunum þá sé það gert. Það má eiginlega segja að þetta bjóði okkur upp á miklu manneskjulegri aðferð til að takast með þessum einstaklingum á við þær breytingar sem eru að verða í lífi þeirra og sambúð þeirra. Þess vegna held ég að þetta skipti miklu máli.
Ég vona að frumvarpið fái góða umfjöllun í hv. velferðarnefnd, og kannski ekki síst í ljósi þess að í þetta skipti eru þingmenn úr fjórum flokkum með á því, og að við getum, í þetta skipti alla vega, komist nær því að afgreiða það. Það skiptir máli að þessi réttindi fólks verði tryggð og að við sem samfélag gerum það sem við getum til að taka vel á móti fólki þegar það er að taka erfiðar ákvarðanir um breytingar á lífsháttum sínum.