málefni aldraðra.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Ólafi Þór Gunnarssyni fyrir að tala fyrir þessu máli og fyrir hans þrautseigju og eljusemi að ítreka það. Þetta er gott mál sem skiptir máli fyrir þá sem í hlut eiga. Það er satt að segja oft erfiðar aðstæður þegar viðkomandi þarf að taka það skref að flytjast inn á stofnun þegar um hjón er að ræða, ég tala nú ekki um samrýmd hjón sem vilja eyða ævikvöldinu saman og til hinstu stundar. En eins og hv. þingmaður kom inn á þá er slíkt fyrirkomulag ekki einhlítt og verður að meta hvert tilvik fyrir sig. Þar sem það á við getur þetta haft mjög góð áhrif á líðan og velferð viðkomandi einstaklinga og getur líka oft haft góð áhrif í því kyrrstöðuumhverfi sem ríkir inni á hjúkrunarheimilum, að fá inn einstakling þó að það sé ekki nema til skemmri tíma.
Mig langar að spyrja hv. þingmann um það hvort hann geti eitthvað metið þetta. Nú er hér um að ræða fyrrum liðsmann í heilbrigðisþjónustu, sérfræðing í læknisfræði, og hann þekkir vel til og hefur skilning á þessum aðstæðum. Getur hann eitthvað metið umfang þessa, hvað við getum verið að tala um mörg tilvik og hvort eitthvað sé hægt að meta áhrif á kostnað og almennt á starfsemi viðkomandi stofnunar? Getur verið um það að ræða? Þarf að gera ráð fyrir þessu í skipulagi stofnananna varðandi aðstöðu? Og að lokum: Telur þingmaðurinn að þetta geti haft áhrif á ráðstöfunartekjur eða framfærslukostnað viðkomandi einstaklings, haft áhrif á greiðslur viðkomandi frá tryggingum eins og tryggingakerfið er búið út í dag?