málefni aldraðra.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Guðjóni Brjánssyni kærlega fyrir og þakka honum fyrir stuðninginn við þetta mál sem hann hefur sýnt í verki. En þetta voru nokkrar spurningar. Ég næ kannski ekki að svara þeim öllum í fyrri umferð. Fyrst varðandi það hvað þetta kynnu að verða margir. Það er erfitt að segja. Við vitum að það losna á milli 1.000 og 1.500 pláss á hjúkrunarheimilum á hverju ári og við vitum að ekki eiga allir þessir einstaklingar maka þegar þeir leggjast inn á heimilin. Nú man ég það hreinlega ekki en mér finnst eins og það sé minni hluti þeirra sem eiga maka á lífi þegar þeir flytja inn á hjúkrunarheimili. Það þarf samt ekki að þýða að allir þessir makar myndu vilja flytja með þannig að það er voðalega erfitt að segja um það og reynslan yrði að segja okkur það. En ég held að þetta þyrfti ekki hafa í för með sér aukinn kostnað fyrir stofnanirnar, sérstaklega ef vel er búið um þetta í reglugerð þannig að kostnaðurinn liggi fyrst og fremst í því sem menn myndu hvort eð er borga fyrir sem þjónustu, t.d. matarkostnað eða læknisþjónustu og þess háttar, eins og þeir alla jafna myndu gera ef þeir væru annars staðar. Að sumu leyti gæti það jafnvel verið hagræði fyrir ríkið, til að mynda hvað varðar læknis- og hjúkrunarþjónustu ef viðkomandi maki þyrfti á henni að halda, að veita hana á staðnum þar sem hún er hvort sem er.
Ég held að það sé rétt metið, ef ég skildi hv. þingmann rétt, hvort það þurfi í einhverjum tilfellum að breyta skipulagi stofnananna. Já, ég held að það þurfi. Ég held að það sé hvort eð er einboðið til framtíðar litið að það þurfi að gera ráð fyrir þessum möguleika í starfi og skipulagi stofnana og þar kann að leynast einhver kostnaður inn í framtíðina. En ég er ekki með það í kollinum með hvaða hætti það yrði og það er kannski enn þá stærra mál en hægt er að svara í stuttu andsvari.