málefni aldraðra.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið og hann þekkir málefnið í þaula. Það er eðlilegt og á flestum nýrri heimilum er gott rými þar sem vel er hægt tímabundið að koma fyrir aðstöðu þannig að tveir aðilar geti búið þar saman. En raunin er í dag, á árinu 2021, að jafnvel á nýlegum heimilum fyrir aldraða eru settir inn tveir alls ótengdir og ókunnugir einstaklingar til þess að búa saman í herbergi til langdvalar. Þetta er ósvinna og vitnar um það hvernig ástandið er í þjónustu við þennan aldurshóp. Þetta er þungbært. Gjaldtakan er sú sama hvort heldur sem í hlut á einstaklingur sem býr í örlitlu herbergi án snyrtingar eða í rúmgóðu rými með snyrtingu og sturtu og jafnvel litlum eldhúskrók. Það leiðir hugann að því hvernig við höfum byggt og þróað þetta kerfi. Ég spyr því þingmanninn: Er þetta ásættanlegt? Er ekki ástæða til að hlusta á þær raddir sem kalla eftir breytingum, bæði á aðbúnaði fyrir aldraða heima og að heiman og á greiðslufyrirkomulaginu þegar við erum flutt inn í þetta umhverfi?
Og svo ætla ég í lokin að taka upp stóru sleggjuna og leita álits hv. þingmanns: Erum við komin á þann stað að við ættum að endurskoða það hvort við þurfum sérstök lög fyrir aldraða, hvort þeirra málefni geti ekki rúmast innan hins almenna lagabálks sem fjallar um almenna borgara í samfélaginu?