151. löggjafarþing — 59. fundur, 24. feb. 2021.
Frestun á skriflegum svörum.
Borist hefur bréf frá mennta- og menningarmálaráðherra þar sem óskað er eftir fresti til þess að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 867, um stuðning og sérkennslu í grunnskólum, frá Önnu Kolbrúnu Árnadóttur. Einnig hefur borist bréf frá félags- og barnamálaráðherra þar sem óskað er eftir fresti til að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 544, um fjölda lífeyrisþega sem fá skertar greiðslur vegna fyrri búsetu erlendis, frá Söru Elísu Þórðardóttur.