151. löggjafarþing — 59. fundur,  24. feb. 2021.

störf þingsins.

[13:16]
Horfa

Ólafur Þór Gunnarsson (Vg):

Virðulegi forseti. Í síðustu viku birtu fjölmiðlar fréttir af traustskönnun Gallups. Könnunin fékk í rauninni minni umræðu en efni stóðu til en þó kannski sérstaklega sá hluti könnunarinnar sem sneri að heilbrigðiskerfinu. Heilbrigðisþjónustan fékk einmitt glimrandi einkunn. 79% landsmanna segjast treysta heilbrigðiskerfinu. Þessi tala hefur hækkað úr 57% í fyrra. Auðvitað hefur stefnumótun skipt máli þarna og heilbrigðisstefnan sem við samþykktum hér samhljóða og vafalítið sú ákvörðun yfirvalda að treysta á vísindi og staðreyndir í baráttunni við yfirstandandi faraldur sem enn er og var náttúrlega fyrirferðarmikill á síðasta ári. En ég tel að starfsfólk heilbrigðisþjónustunnar eigi þetta traust, sá mikli mannauður sem þar fer og hefur sýnt okkur hvers hann er megnugur á erfiðum tímum. Styrking heilsugæslunnar hefur auðvitað skipt þarna máli. Uppsetning göngudeildar fyrir Covid-sjúklinga hefur skipt máli og fleira og fleira. Traust á heilbrigðiskerfinu er ekki alveg sjálfsagt en það skiptir okkur sem samfélag alveg gríðarlega miklu máli. Heilbrigðisþjónusta er mannréttindi og traust til hennar er hluti af líminu í samfélaginu. Það er ástæða til að fagna með því góða fólki sem ber uppi þjónustuna. Það fær stóran plús í kladdann.