störf þingsins.
Herra forseti. Í síðustu viku samþykkti Alþingi einum rómi breytingar á hegningarlögum sem varða kynferðislega friðhelgi og er ætlað að stemma stigu við vaxandi beitingu stafræns kynferðislegs ofbeldis. Björt Ólafsdóttir, sem þá var þingmaður Bjartrar framtíðar, lagði fram frumvarp svipaðs efnis árið 2015. Helgi Hrafn Gunnarsson, þingmaður Pírata, hefur farið fyrir þverpólitískum hópi meðflutningsmanna og lagt fram frumvörp árin 2017 og 2018 til að bregðast við stafrænu kynferðisofbeldi. Þrátt fyrir að ekkert þessara mála hafi náð fram að ganga ýttu þau svo sannarlega við stjórnvöldum sem lögðu loks til breytingar sem nú eru orðnar að lögum. Í viðtali við Morgunblaðið segir Kolbrún Benediktsdóttur varahéraðssaksóknari, með leyfi forseta:
„Þetta er jákvætt því að nú erum við í fyrsta sinn með lagaákvæði sem tekur á þessari háttsemi sérstaklega, það er að segja að dreifa og birta kynferðislegt efni án samþykkis viðkomandi.“
Það gladdi mig sérstaklega að við meðferð málsins í þingnefnd var tekin upp skýr samþykkisregla. Það var einmitt gert með vísan til slíkrar reglu sem nú er að finna í nauðgunarákvæði almennra hegningarlaga en sú regla var tekin upp árið 2018 þegar þingmannafrumvarp mitt þess efnis var samþykkt. En þetta sýnir glöggt að frumkvæði einstakra þingmanna skiptir máli, að byggt sé á þinglegri vinnu þeirra, að hún skili sér í umbótum á lögum þótt það taki stundum lengri tíma en ég kysi. Þetta eru mikilvægar breytingar og til marks um það hvernig pólitíkin getur virkað þegar vilji stendur til þess.