151. löggjafarþing — 59. fundur,  24. feb. 2021.

fjármálafyrirtæki.

7. mál
[13:55]
Horfa

Frsm. 2. minni hluta efh.- og viðskn. (Oddný G. Harðardóttir) (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Í umræðunni um þetta frumvarp hafa þeir sem styðja það viljað meina að þetta þak sé sett til að draga úr áhættusókn eigenda bankanna áður en hlutur ríkisins í þeim er seldur. Ég vil spyrja hv. þingmann: Ef það er tilgangurinn, hvers vegna leggja stjórnarflokkarnir ekki til breytingu á lögum í þá veru að koma í veg fyrir beinar fjárfestingar viðskiptabankanna, svo sem við kaup á hlutabréfum í öðrum fyrirtækjum, ef viljinn stendur raunverulega til þess að draga úr áhættusókn eigenda banka áður en hlutur ríkisins í þeim er seldur? Ég spyr hv. þingmann hvort hann telji að þeirri spurningu hafi verið svarað með skýrum hætti og hvort mögulega hafi verið átök innan stjórnarflokkanna um lendingu í þá veru.