verð á kolmunna og loðnu.
Herra forseti. Það þarf auðvitað ekki að fjölyrða um að það eru gríðarlega miklir hagsmunir í því að útgerð fái sem hæst verð fyrir þann afla sem hún veiðir úr sameiginlegum og takmörkuðum auðlindum okkar. Og ekki bara fyrir þær heldur fá sjómenn hærri laun, hafnir landsins meiri tekjur, sveitarfélög hærra útsvar og ríkissjóður hærri tekjuskatt og hærri veiðigjöld. Þetta gerir okkur kleift að reka hér gott samfélag og ekki veitir nú af á þessum erfiðu tímum. Í mars 2019 kom fram í tölum frá Verðlagsstofu skiptaverðs að meðalverð íslenskra skipa sem seldu kolmunna til bræðslu var 25 kr. en 36 kr. hjá norskum skipum. Það sem er ekki síður áhugavert við þetta dæmi er að veiðarnar áttu sér stað á sama tíma, úr sömu torfu og var aflað á land í sömu verksmiðju, á sama degi. Nú hefur hæstv. sjávarútvegsráðherra væntanlega brugðið við að sjá þetta, einhent sér strax í að skoða hvað þarna var í gangi og haft drjúgan tíma til að melta hlutina. Nú bið ég hann vinsamlegast að upplýsa þingheim um hvað skoðun hans leiddi í ljós. Hvernig getur hann útskýrt þennan 45% verðmun og hvaða vinnu hefur hann sett í gang í kjölfarið til að hafa eftirlit með þessum hlutum í framtíðinni? Mun hann t.d. fylgjast með hvort svipuð mynd er að teikna sig upp varðandi loðnuveiðarnar sem blessunarlega eru hafnar aftur? Ég minni hann á, þegar hann svarar þessari spurningu, að gríðarlegir hagsmunir eru í húfi fyrir samfélagið allt.