verð á kolmunna og loðnu.
Herra forseti. Það er rétt hjá hæstv. ráðherra að við erum yfirvegaðir menn og tökum hlutunum yfirleitt með stóískri ró. En þó bregður manni vissulega þegar maður sér svona tölur vitandi að 27.000 manns eru atvinnulausir á Íslandi og draga fram lífið með erfiðum hætti og ríkissjóður þarf að leggja í mikinn kostnað við að halda hlutunum gangandi hér í samfélaginu. Það munar því svo sannarlega um þessar krónur ef munurinn er til kominn af öðru en því sem getur kallast eðlilegt. Þess vegna væri æskilegt að hæstv. sjávarútvegsráðherra myndi einhenda sér í að kalla eftir skýringum, þetta skiptir okkur miklu máli. Nú berast t.d. fréttir af því að það sé verið að borga 220 kr. fyrir loðnuna úr norskum skipum en vísbendingar um að það sé kannski helmingi lægra hjá íslenskum skipum. Verður þessu fylgt eftir? Verður þetta skoðað og verður það skýrt með viðeigandi hætti vegna þess að það eru sömu aðilar að kaupa þetta?