151. löggjafarþing — 60. fundur,  25. feb. 2021.

verð á kolmunna og loðnu.

[13:08]
Horfa

sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra (Kristján Þór Júlíusson) (S):

Virðulegi forseti. Ég vil taka það fram strax að það er ekki opinber verðlagning á fiski, það er ekki á forræði stjórnvalda að ákvarða verð í þessum viðskiptum. Það eru sjómenn og útgerðarmenn sem eiga með sér samstarf um það og þar hefur m.a. Verðlagsstofa komið að málum og reynt að leiða menn saman, draga fram upplýsingar o.s.frv. Það er tæki stjórnvalda í þessum málum. En þarna er um að ræða frjálsa samninga á milli sjómanna og útgerða. Eins og ég segi: Við höfum ekkert ákvörðunarvald. Við erum ekki með nein inngrip í þessa frjálsu samninga. Ég tek undir það með hv. þingmanni að það er gleðiefni að uppsjávarflotinn er farinn aftur til veiða og skilar verðmætum inn í landið sem við höfum ekki séð í loðnunni í þrjú ár; gríðarleg verðmæti þarna undir. En verðmyndunin er frjáls, bara svo að það sé sagt. Það er ekkert inngrip í því. (LE: Hún þarf að vera eðlileg. Það er það sem ég er að …) Ég tek undir það að hún þarf að vera eðlileg og ég (Gripið fram í.) hef ekki verið að gera … (Gripið fram í.) Það er í athugun, hv. þingmaður.