erlend lán ríkissjóðs.
Virðulegi forseti. Það er margt sem ég fæ ástæðu til að bregðast við vegna þess að sumt af því sem sagt var setur hlutina ekki í rétt samhengi. Ríkið skuldar í erlendum gjaldmiðlum en ríkið á líka stóra sjóði af erlendum gjaldmiðlum í Seðlabankanum. Hluti gjaldeyrisforða landsins eru eignir ríkisins í erlendum gjaldmiðlum í Seðlabankanum. Þegar hv. þingmaður segir að skuldir okkar hafi vaxið vegna gengisbreytinga þá sleppir hún því að nefna að eignir okkar í Seðlabankanum í erlendum gjaldeyri hafa hækkað og annar gjaldeyrisforði Seðlabankans sömuleiðis. Þess vegna er það rangt sem hv. þingmaður segir að það hafi lagst einhverjar 45 milljarða viðbótarbyrðar á íslenska skattgreiðendur. Það er bara alrangt. Í besta falli væri hægt að kreista fram einhverja niðurstöðu um svona einn tíunda þeirrar fjárhæðar. Einn tíundi, sem er þá mismunurinn á breytingum eignastöðunnar og skuldastöðunnar, væri það sem við ættum að vera að ræða hér. Það er engin fjárhæð til að hafa áhyggjur af.
Ég er þeirrar skoðunar að við höfum náð gríðarlega góðum árangri, og markaðurinn hefur verið sömu skoðunar, við að sýna fram á það hvernig við ætlum að fjármagna hallann. Það birtist í góðum viðtökum við útgáfum íslenska ríkisins, bæði á erlendum mörkuðum og hér heima fyrir, og kjörin sem okkur hafa boðist núna síðast í erlendri lántöku eru þau bestu sem íslenska ríkið hefur nokkru sinni fengið. Þetta er mikill gæðastimpill á þá áætlun sem við höfum sett saman. Að sjálfsögðu verður ný fjármálaáætlun lögð fyrir þingið núna í vor.
Ég skal í síðara andsvari mínu koma aðeins nánar inn á það hvernig ég tel að hv. þingmaður misskilji hreinlega gengisáhættuna vegna erlendrar lántöku ríkisins í þessu samhengi.