erlend lán ríkissjóðs.
Virðulegi forseti. Það er rétt að halda því til haga að fyrir veiru var ríkissjóður orðinn ósjálfbær. Þá voru tekjur minni en útgjöld ríkisins, bara þannig að það sé sagt og því sé haldið til haga. Eftir stendur að erlendir lánveitendur hafa traust á ríkissjóði. Það þýðir ekki traust þeirra á gjaldmiðlinum, langt í frá. Og hvað er það sem ríkissjóður getur gert? Meðal annars lagt byrðar, í gegnum skattgreiðslur o.fl., skattaálögur, á almenning. Það vita erlendir lánveitendur. Þess vegna treysta þeir því að ríkið fari þá gamalkunnugu leiðir. Ég vek athygli á því að fjármálaráðherra svarar því ekki enn hvort áhættumat hafi verið gert vegna þessarar kúvendingar. Það er allt annað að veita ríkissjóði innlend lán í gengisgjaldmiðlabúblu okkar hér heima á Íslandi en að kúvenda og fara yfir í 600 milljarða erlenda lántöku án þess að það hafi verið rætt hér og áhættan metin fyrir heimilin, áhættan metin fyrir fyrirtækin og velferðarkerfið okkar. (Forseti hringir.) Það skil ég ekki. Ég trúi ekki öðru í ljósi reynslunnar, sem við verðum að fara að læra af og horfast í augu við, en að ríkisstjórnin hafi gert áhættumat. Við höfum ekki séð þetta áhættumat frá ríkisstjórninni. Ríkisstjórnin hlýtur (Forseti hringir.) að hafa gert áhættumat. Hæstv. forseti ætti að vita manna best og helst (Forseti hringir.) að við eigum að fara varlega (Forseti hringir.) og við eigum að vera með gegnsæi þegar kemur að svona málum.