erlend lán ríkissjóðs.
Virðulegi forseti. Við höfum ekkert gert áhættumat vegna 600 milljarða erlendrar lántöku vegna þess að við stefnum ekkert á 600 milljarða nýja erlenda lántöku. Þetta er bara einhver tala sem hv. þingmaður hefur fundið hjá sjálfri sér. Erlend lántaka upp á 600 milljarða vegna hallareksturs ríkissjóðs hefur ekkert verið boðuð. (Gripið fram í.) Við höfum hins vegar þörf fyrir að gefa út í erlendu til að endurfjármagna eldri erlend lán. Á bak við þau erlendu eldri lán er sjóður í Seðlabankanum. Það eru evrur í Seðlabankanum á móti evruskuld. Þetta er einhver misskilningur.
Ég held hins vegar að það sé mjög mikilvægt að taka umræðu um þá áhættu sem getur myndast þegar menn fjármagna innlendan halla með erlendri lántöku. Það er alveg rétt að við erum með stefnubreytingu hvað það varðar, bara ekki í því umfangi sem hv. þingmaður er að nefna. Ef við horfum hins vegar í gegnum stofnanirnar og skoðum ríkissjóð og Seðlabankann saman og gerum okkur grein fyrir því að það er engin rökbundin nauðsyn að snúa gjaldeyrinum öllum í íslenskar krónur heldur er hægt að vista hann í evrum í Seðlabankanum verður gengisáhættan aldrei til í reynd, ekki fyrir íslenska þjóðarbúið.