151. löggjafarþing — 60. fundur,  25. feb. 2021.

almannatryggingar.

[13:22]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. fjármálaráðherra svarið. Hann sagði sjálfur: Það eru bara örfáir sem lifa á þessum lægstu bótum og hafa ekki til hnífs og skeiðar. Af hverju í ósköpunum er þeim þá ekki hjálpað? Hann segir: Það eru ekki til peningar. Hvar eru peningarnir? Í lífeyrissjóðakerfinu. Við í Flokki fólksins vorum að mæla fyrir frumvarpi um að skattleggja inngreiðslur í lífeyrissjóðina. Þannig er hægt að ná 100 milljörðum. Í lífeyrissjóðakerfinu eru nú þegar á þriðja þúsund milljarða af skattfé, peningar sem hægt væri að nota í þetta kerfi. Þetta eru bara peningar í skógi, ekki í hendi. Við sáum það í bankahruninu að þessir peningar geta gufað upp. Það er alveg með ólíkindum að við skulum á sama tíma leyfa það að verið sé að gambla með þessa 6.000 milljarða á markaði, sem er orðið allt of hátt, en taka ekki skattpeninginn af þessu og nýta hann fyrir það fólk sem búið er að borga þetta og á þessa peninga í sjálfu sér, í staðinn fyrir að skatta þetta og skerða upp undir 80–90%.