151. löggjafarþing — 60. fundur,  25. feb. 2021.

almannatryggingar.

[13:23]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Virðulegur forseti. Ég vil taka það fram að sá hópur sem hefur haft minnst hefur fengið mikla bót sinna mála með frumvarpi sem hæstv. félagsmálaráðherra kynnti til sögunnar og fékk lögfest á þessu kjörtímabili. Þar beindum við sjónum okkar sérstaklega að þeim sem höfðu minnst. Í raun og veru tókum við aftur upp eins konar sérstaka framfærsluuppbót sem áður hafði verið felld inn í grunnbæturnar. Hv. þingmaður nefnir hér gamalkunnuga hugmynd, sem ég taldi á sínum tíma að við ættum að skoða, sem væri að færa til í tíma skattlagningu á lífeyristekjum. En við björguðum okkur upp úr miklum efnahagsþrengingum án þess að gera það og ég tel að við eigum áfram að byggja á sömu aðferðafræði, þ.e. að geyma þessar skatttekjur inni í lífeyriskerfinu og eiga þær þá sem framtíðartekjur ríkissjóðs. Það er auðvitað gríðarlega mikill styrkur af því. Þetta eru peningar sem verða ekki notaðir tvisvar. Ef við tökum þá til okkar núna til að leysa svona vanda væri það einskiptisaðgerð og við værum að gera það á kostnað framtíðartekna ríkissjóðs.