151. löggjafarþing — 60. fundur,  25. feb. 2021.

sala Landsbankans á fullnustueignum.

[13:29]
Horfa

Þorsteinn B Sæmundsson (M):

Herra forseti. Síst hef ég á móti því að taka málið aftur upp og leggja þessa fyrirspurn fram á ný. Ekki er langt síðan ég fékk svar um sambærilegar eignir Íbúðalánasjóðs eftir þrjú ár. Ráðherrar sem þar komu að voru, samkvæmt minnisblaði sem gefið var út af yfirlögfræðingi Alþingis, að fara á svig við lög um þingsköp og lög um ráðherraábyrgð. Nú þekki ég hæstv. fjármálaráðherra að því að vera drengur góður þannig að ég ætla honum ekki að fara þá leið. Ég ítreka það við hæstv. ráðherra, hafandi í huga þennan samning sem er hér í þessu púlti, um rekstur Landsbanka Íslands, sem er í þjóðareigu, að þessar upplýsingar verði reiddar af hendi. Ég treysti bara á það að fjármálaráðherra muni verða stuðningsmaður minn í því að þessar sjálfsögðu upplýsingar verði lagðar fram.